Það er líklegt að þeir sem leggja leið sína til Vínarborgar, láti ekki nægja að skoða borgina "utan frá", heldur hafi líka áhuga á að sækja tónleika, fara í Óperuna, líta inn í Keisarahöllina, skoða glæsileg híbýli í Schönbrunn höllinni ... svo eitthvað sé nefnt.
Hótel og ýmiskonar gisting í Vín
Mér hefur reynst vel að byrja dvöl í Vínarborg á því að heimsækja upplýsingamiðstöð ferðamála: Tourist Info Vienna, Vienna 1, Albertinaplatz / Maysedergasse, í grennd við Ríkisóperuna. Opið daglega frá kl. 9 - 17. Þar er hægt að fá margskonar bæklinga og hægt að gera sér grein fyrir hvað er á döfinni.
Continue reading "Vínarborg - "Að innan"" »
Fyrir þá sem vilja fljúga til Vínar á eigin vegum er hægt að með lágfargjaldaflugfélögum eins og t.d. Air Berlin frá London.
Hótel og ýmiskonar gisting í Vín
Vínarborg á sér langa og merka sögu eins og raunar allar hinar gömlu og grónu evrópsku borgir sem Íslendingar og aðrir njóta svo mjög að sækja heim.
Continue reading "Vínarborg - Venia - Vindobona" »
Sardinía (Sardegna) hefur löngum verið sveipuð svolitlum ævintýraljóma. Eyjan hefur verið einangruð í gegnum tíðina og íbúarnir (Sardi) átt sér sína sérstöku menningu. Kannski ekki ósvipað Vestmannaeyjum og Íslandi… - en Sardiníubúar kalla Ítalíu einfaldlega "meginlandið". Íbúarnir inni í landi á Sardiníu tala enn sína sérstöku latínu-skotnu mállýsku og halda fast við forna siði og venjur.
Continue reading "Sardinía" »
Orð eins og virðuleiki og glæsileiki koma fyrst í hugann þegar minnst er á Búdapest. Ekki þarf annað en að standa um stund á Hetjutorginu (Hosök Tere) til að skilja þessi orð og finnast maður mega sín lítils… Kannski ekkert skrítið að Búdapest er gjarnan nefnd "París" Austur-Evrópu.
Lágfargjaldafélög fljúgja gjarnan til Búdapest frá t.d. London.
Hótel í Búdapest
Continue reading "Búdapest" »
Bærinn Rothenburg liggur á hinni svokölluðu "rómantísku leið" í Þýskalandi. Þetta er lítil perla og svo litrík að stutt stopp dugar vart til að komast yfir það sem gaman væri að sjá. Bærinn er einn af best varðveittustu miðaldabæjum í Þýskalandi.
Hótel í Rothenburg
Continue reading "Rothenburg" »
Riva del Garda er fyrsti "suðræni" staðurinn sem ferðamenn sjá þegar þeir koma til Ítalíu yfir Brennerskarðið (Brennero) og niður að Gardavatninu. Þessi nyrsti hluti vatnsins er frægur fyrir heiðan himinn og kristaltært vatn.
Continue reading "Riva del Garda" »
Gardavatnið - Lago di Garda (sem eitt sinn hét Benaco) og umhverfi þess, er af mörgum talið eitt fallegasta landssvæði Ítalíu. Það liggur á Norður-Ítalíu, rétt við rætur Alpafjallanna.
Vatnið, sem er stærsta stöðuvatn Ítalíu, er að mestu umlukið fjöllum en syðri endi þess snertir aðeins Pósléttuna. Gardavatnið er raunar ekki bara vatn, heldur leynast þar einnig litlar víkur, strandlengjur fyrir sólbaðsunnendur og eyjar.
Continue reading "Gardavatnið - Lago di Garda" »

Prag er "stemming". Prag er menning. Prag er list. Prag er …. engu lík. Þangað er hægt að koma aftur og aftur og njóta hvers einasta andartaks. Borgin er þó ekki öll jafn falleg. Gangið aðeins út fyrir miðborgina og þá gefur að líta grámuskulegar íbúðablokkir sem minna á árin áður en "járntjaldið" féll.
Einhvern veginn hefur mér alltaf þótt Prag vera svo langt í burtu - en hið rétta er að það eru ekki nema 384 km milli München og Prag og 294 km milli Vínarborgar og Prag. Vegalengd sem lítill vandi er að fara á hluta úr degi.
Að koma til Prag
Ef komið er akandi til Prag frá t.d. Austurríki liggur leiðin í gegnum afskaplega fallegt, skógi vaxið landslag og akra. Vegirnir eru yfirleitt frekar mjóir og vart hægt að aka á meira en 80-90 km hraða.
Lágfargjaldaflugfélög eins og Ryanair og Easyjet fljúga gjarnan til Prag.
Gisting
Það er vægast sagt um margs konar gistingu að ræða, hótel af öllum stærðum, gerðum og gæðaflokkum í Prag. Einnig er oft hægt að leigja íbúðir á hagstæðu verði.
Helstu upplýsingar
Prague welcome
Óperan í Prag
Miðar á ýmsa viðburði í Prag
Continue reading "Prag - alveg einstök" »
Feneyjar, borgin sökkvandi, er með sérkennilegustu borgum Evrópu og jafnvel þótt víðar væri leitað. Það er merkileg tilfinning að ferðast um síki borgarinnar á bátum og virða fyrir sér mishrörlegar byggingar þar sem þær rísa upp úr vatninu og kjallararnir oft í hálfu kafi. Lyktin er sérstök, fellur ekki öllum, en er þó órjúfanlegur partur af því andrúmslofti sem umlykur Feneyjar. Borgin sekkur þó ekki í dag jafn hratt og áður, tekist hefur að einhverju leyti að stöðva þá þróun.
Hótel í Feneyjum
Ferðahandbækur um Feneyjar
Það er viturlegt að reyna að forðast Feneyjar um helgar að sumarlagi ef hægt er. Fólksfjöldinn getur þá orðið ansi þrúgandi og ef hitinn er mikill getur slík heimsókn orðið erfið ef ekki er að gáð. Gott er að hafa eitthvað á höfðinu í miklum hita og sól – það eru ekki vandræði með það í Feneyjum, því mikið er um sölutjöld og bása í grennd við Markúsartorgið með alls kyns höttum og höfuðfötum.
Continue reading "Feneyjar, borgin sökkvandi" »
Það er auðvelt að fljúga á eigin vegum til Barcelona frá London Stansted. Air Berlin og EasyJet fljúga beint til Barcelona og Ryanair flýgur til Girona. Frá Girona er aðeins rúmlega klst. ferð til Barcelona með rútu þar sem farið er út við Passeig Sant Joan.
Nóg er af hótelum á góðu verði t.d. frá Booking.com. Ferðalangur dvaldi í nokkra daga í miðju hverfinu El Raval, skammt frá La Rambla sem er aðalgöngugata Barcelona.
Í El Raval fer fram mikil uppbygging, mikil endurnýjun húsakosts og víða er verið að smíða og gera við hús. Þetta hverfi hafði áður ekkert sérstakt orð á sér, en það er mjög skemmtilegt að því leyti að þarna býr venjulegt fólk - ekki bara túristar... (hversu gáfulega sem það nú hljómar!). Á morgnana heyrðist í frúnum í kring kalla á milli húsa, krakkar léku sér í húsasundum og andrúmsloftið var einkar skemmtilegt.
Barcelona er feikna fjölbreytt borg og þar geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi.
Continue reading "Barcelona" »
Það líður að karnivalhátíðinni í Nice í Suður-Frakklandi en það hefst föstudaginn 13. febrúar n.k. (enginn hjátrúarfullur á þeim slóðum!) og stendur til 25. febrúar (2005). Þetta er einn helsti viðburðurinn yfir vetrartímann á Frönsku Rivierunni og borgin glæðist nýju lífi á meðan hátíðahöldin standa yfir. Óhætt er að segja að blóm séu í aðalhlutverki þessa daga enda borgin fræg fyrir blóm og blómarækt í héraðinu.
Continue reading "Nice - Karnival að hefjast" »
Margir hafa eflaust heyrt talað um þjóðgarðinn Le Cinque Terre á Ítalíu og sumir hafa e.t.v. farið í gönguferð um svæðið. En hvað er þetta eiginlega?
Le Cinque Terre er svæði, ca. 40 km strandlengja í Lígúríuhéraði á norð-vestur hluta Ítalíu, sem á standa fimm lítil og ævagömul fiskimannaþorp (cinque = fimm, terre = jarðir, lönd).
Ef siglt er á bát meðfram þessu svæði má ýmist líta snarbratta kletta eða vínekrur í hlíðum og inn á milli leynast hellar og litlar afskekktar víkur. Þetta er ægifagurt svæði og engin tilviljun að það tilheyrir heimsminjaskrá Unesco. Heimsókn á þetta svæði er n.k. tækifæri til að líta inn í liðna tíð. Fyrir utan náttúrufegurð, er svæðið frægt fyrir vínframleiðslu sína (þið verðið að smakka Sciacchetrá!) og ýmis konar afurðir sem fengnar eru jafnt af landi sem úr sjó.
Continue reading "Le Cinque Terre - Ítalía" »