« ... og tíminn líður... | Aftur á aðalsíðu | Ný bók um París »

Ein/einn á ferð...

Það eru ekki allir í sambúð... og ekki allir í sambandi, en vilja samt ferðast og eiga skemmtileg frí. Trúlega er fólk misduglegt við það og sumir hreinlega hreyfa sig ekki út fyrir landsteinana ef þeir sjá fram á að ferðast einir.

Hópferðir eru oft ágæt lausn. Í þeim kynnist fólk yfirleitt fljótt og vel, t.d. í 1-2ja vikna rútuferðum erlendis sem nokkrar íslenskar ferðaskrifstofur bjóða reglulega. Göngu- og hjólaferðir hafa einnig verið vinsæll ferðamáti fyrir einstaklinga.

Í blaðinu The Sunday Times, birtist ágæt grein fyrir nokkrum dögum sem nefnist "Lonely hearts clubs banned" þar sem rætt er á skemmtilegan hátt um vanda þeirra 30% Breta sem ekki eru í langtíma samböndum... en vilja ferðast. Greint er frá því að sumar ferðaskrifstofur þar í landi hafi brugðist sérstaklega við þörfum þessa hóps og og nefndir til sögunnar allmargir möguleikar sem standa til boða. Góð lesning :-).

Hótelvefurinn - allar tegundir gistingar erlendis
Ódýrt flug með Iceland Express

mars 9, 2005 in Einn á ferð | Prentvænt