Hvað er það sem dregur Íslendinga alla leið til Sikileyjar? Á undanförnum mánuðum hefur orðið vart við sívaxandi áhuga Íslendinga á Sikiley - e.t.v. að hluta vegna borgarferða til Palermo en kannski einnig vegna þess að við sækjum gjarnan í andstæður, eitthvað sem er nógu ólíkt okkur hérna heima.
Þeir sem leggja leið sína til Sikileyjar, þyrftu helst að gleyma armbandsúrinu heima ásamt íslenskri stundvísi og þörf fyrir skipulag! - Á Sikiley gengur lífið einfaldlega fyrir sig í mun meiri rólegheitum en við eigum að venjast.
Continue reading "Sikiley" »
Það er auðvelt að komast til Brno, næst stærstu borgar Tékklands. Þangað flýgur lágfargjaldaflugfélagið Ryanair daglega frá Stansted og miðarnir oft á hlægilegu verði.
Óhætt er að mæla með hótelinu Royal Ricc sem er í 16. aldar byggingu í barokkstíl og var fyrir nokkrum árum síðan breytt í eitt laglegasta hótel í Brno með antikhúsgögnum og málverkum á herbergjunum og skemmtilegum smíðajárnsskreytingum í lobbíinu. Góður veitingastaður er á hótelinu með alþjóðlegum matseðli.
Continue reading "Brno - afhverju ekki?" »
Þegar íslenskir sóldýrkendur liggja dasaðir á sólbekkjum undir glampandi sól á Spánarströndum er erfitt að ímynda sér að Spánn eigi sér aðrar og áhugaverðar hliðar. Þannig er það nú samt og náttúra Spánar býður upp á meiri fjölbreytileika en okkur kannski grunar.
Continue reading "Hin "villta" hlið Spánar" »
Þorpshátíðir á Ítalíu rata einhvern veginn sjaldnast í bæklinga fyrir ferðamenn og ef einhverjar upplýsingar er að finna, er eins víst að þegar mætt er á staðinn sé hátíðin löngu búin!
Héraðið Umbria er frægt fyrir "sagra" hátíðir sínar, sem stundum geta staðið allt upp í viku. Sagra er komið úr "sacra" á ítölsku, sem þýðir "heilög" - sama orð og sacred á ensku.
Continue reading "Sagra - Sacra - "Sacred"" »
Í miðjum Buchenwald-búðunum stendur "Goethe-eikin", eða öllu heldur leifar hennar, frá því að bandamenn skutu hana niður árið 1944. Eikin, þar sem skáldið Goethe sat og fékk ljúfan innblástur frá vinkonu sinni, frú Stein, fyrir margt löngu síðan. Eikin, sem löngu síðar varð þögult vitni að einum mesta hryllingi mannkynssögunnar.
Það er vart hægt að heimsækja borgina Weimar án þess að votta fórnarlömbum fyrrum útrýmingarbúða í Buchenwald virðingu sína. Búðirnar voru meðal þeirra fyrstu sem nazistar reistu á þýskri grund og einnig með þeim stærstu.
Continue reading "Buchenwald, rétt hjá Weimar" »
Þeir sem ekki eru tilbúnir að greiða gistingu í London dýru verði yfir sumartímann, ættu að skoða stúdentagarða háskólanna sem bjóða ódýra gistingu á tímabilinu frá miðjum júní og fram í miðjan september.
Continue reading "Ódýr sumargisting í London - stúdentaherbergi/íbúðir" »
Opnað hefur verið afar óvenjulegt og skemmtilegt "safn" Paleosite í Saint-Césaire, 140 km norður af Bordeaux í suðvestur Frakklandi, sem gefur innsýn í líf Neanderdalsmannsins.
Continue reading "Neanderdalsmaðurinn í Frakklandi" »
Þeir eru virðulegir kapparnir Goethe og Schiller þar sem þeir standa hlið við hlið á Theaterplatz í Weimar. Enda hafa þeir ástæðu til að bera sig vel í þessari fallegu og merku borg þar sem sagan bókstaflega talar til manns á hverju götuhorni.
Það er ekki alltaf sem færi gefst til að heimsækja stað þar sem svo margar þekktar og mætar persónur hafa búið og dvalist í gegnum tíðina. Enda var erfitt að fá stúlku í Ferðamálaráði Weimar, sem var að gera könnun á ástæðum heimsóknar Ferðalangs, til að skilja að hún væri ekki eingöngu til komin vegna sérlegs áhuga á 200 ára dánarafmæli Schillers í ár (2005)...
Continue reading "Weimar" »
Bologna í héraðinu Emilia Romagna hefur löngum verið þekkt sem borgin þar sem hægt er að ganga um án þess að vökna þegar hann rignir... vegna þess hversu margar gangstéttir eru yfirbyggðar.
Þessi háskólaborg hefur líka haft það orð á sér að vera borg mennta, menningar og húmanískra viðhorfa.
Gisting í Bologna
Hótel frá Venere og Hotel Club
Continue reading "Bologna" »
Það eru margir fróðleiksmolar um borgina Montpellier í greininni Shopping in France Montpellier: Ancient and modern af vefsíðu The Independent.
Ferðamálaráð Montpellier
www.ot-montpellier.fr
Gisting í Montpellier
Hótel frá Hotel Club og Venere.
Continue reading "Montpellier" »
Á þessari litlu eyju, Porto Santo, sem liggur um 400 mílur frá strönd Afríku, er svo sannarlega hægt að finna kyrrð og ró fyrir þá sem það kjósa, nema seinnipart júnímánaðar þegar Sao Joao (St. John) hátíðin er haldin. Íbúar eru um 5000 talsins og eyjan ekki mikið stærri en 7x3 mílur.
Gestir koma með flugvél eða ferju frá Madeira.
Continue reading "Porto Santo - Portúgal" »
"Hann lyktar eins og úldið egg, vex aðeins villtur og kostar heila formúu. Hann getur veitt ljóðrænan innblástur, verið rómantískur og valdið glæpum. Hundum hefur verið rænt - og lausnargjald greitt - bara vegna þessa sveppategundar..." segir í upphafi greinar á vefsíðu National Geographic, Truffle Riches Drive Men to Secrecy, Crime in Italy.
Continue reading "Tartufo - truffle - jarðkeppur (tröffla)" »
Þeir sem koma á bíl til borgarinnar Erfurt í Thüringenhéraði í Þýskalandi, gætu haft gaman af því að gista í útjaðri borgarinnar, nánar tiltekið í Kühnhausen. Þar er Pension Kastanienhof í gömlum bóndabæ og herra Geier tekur vel á móti gestum með kaldhæðnislegum gálgahúmor.
Continue reading "Ódýr og skemmtileg gisting í Erfurt" »