Au Rucher de Jabelin heitir sérlega viðkunnalegt bændabýli úti í sveit um 100 km suður af Lyon, ekki langt frá borginni Valence. Ekki er þó langt í "menninguna" því bærinn Romans liggur einungis í 1-2 km fjarlægð.
Þarna búa hjónin Thérèse og Jacques Blanchy og sinna býflugnabúskap og bændagistingu. Húsið er um 200 ára gamalt, afar fallega uppgert og stendur á milli maís- og sólblómaakra með útsýni til fjalla í fjarska.
"Ég hef komið til Íslands", sagði frú Thérèse kankvís, þegar Íslendingarnir trítluðu inn fyrir með allt sitt hafurtask. Þeir horfðu spurnaraugum á frúna, sem teymdi þá óðara inn á skrifstofuna sína og sýndi þeim sigri hrósandi skjáinn á fartölvu þar sem forritið Google Earth var opið og Ísland á skjánum!
Þreyttum ferðalöngum var vísað upp á aðra hæð í þessu fallega, gamla húsi þar sem þeir tóku nánast andköf þegar þeir sáu hversu stór og notaleg herbergin voru í "rustic stíl" - með myndarlegum dökkum viðarrúmum, skápum og kommóðu í stíl. Klósett inn af herbergjunum. - Á herbergjunum voru gluggar með viðarhlerum sem gaman var að líta út um og horfa yfir garðinn (sundlaug í garðinum) og næsta nágrenni.
Morgunmatinn pöntuðu ferðalangar kl. 9 morguninn eftir og þar beið Thérèse með te, kaffi og heitt súkkulaði fyrir þá sem vildu og girnilegt morgunverðarborð með croissants, dökku og ljósu brauði og að sjálfsögðu hunangi frá Le Rucher de Jabelin.
Gestirnir voru svo forvitnir að á endanum sá frúin sér ekki annað fært en að setjast niður líka og svala forvitni þeirra um býlið og næsta nágrenni. - Á býlinu eru þau hjónin með 300 býflugnabú og það merkilega er að þau þurfa að þvælast með búin út um allar trissur, þar sem þau eru skilin eftir um tíma hjá vænlegum blómaökrum, t.d. lavenderökrum í 2- 6 vikur. Síðan eru búin sótt aftur. - Sumir bændur fá m.a.s. búin leigð í tiltekin tíma til að láta býflugurnar frjóvga plöntur.
En gestirnir létu ekki þar við sitja, þeir urðu að fá að sjá býflugnabú með eigin augum. Thérèse vísaði veginn, á svæði skammt frá húsinu, en þar varð að gæta fyllsta öryggis, standa í skugga og fara ekki of nálægt búunum. Þar stóðu búin 20 - 30 talsins og flugurnar sveimuðu í kring.
Ferðalangur mælir óhikað með þessari góðu gistingu, þar sem 2ja manna herbergi kostaði á bilinu 47/57 evrur með morgunmat, en aðbúnaðurinn var eins og á fínu hóteli!
Heimasíða Au Rucher de Jabelin
http://vacancedrome.monsite.wanadoo.fr/
Netfang
ruchjab@wanadoo.fr



