Yfirlit: Króatía - land og þjóð
Saga Króatíu
Gagnlegar staðreyndir, kort og tölulegar upplýsingar um Króatíu.
Gisting
Gisting í Króatíu
Yfir 4000 sumarhús og íbúðir frá E-domizil víða í Króatíu.
Samgöngur
Það eru margar leiðir til að koma sér til Króatíu. Ein þeirra er að fljúgja með Iceland Express til London í gegnum Stansted flugvöll. Þaðan flýgur m.a. EasyJet beint til Ljubljana í Slóveníu en Ryanair flýgur til Trieste á Ítalíu en frá þessum stöðum er stutt yfir til Króatíu. Lágfargjaldaflugfélagið Germanwings flýgur til borganna Split, Dubrovnik og Zagreb frá nokkrum borgum í Þýskalandi.
Fyrir þá sem ætla sér að aka um Króatíu er hægt að verða sér út um leiðbeiningar um akstursleiðir frá Michelin.
Bakpokaferðalangar geta hins vegar kynnt sér lestaráætlanir (smella svo á English) og ferjuáætlanir.
Ferðahandbækur
Ég hef sjálf mikið notað ferðabækur frá Lonely Planet og get hiklaust mælt með þeim. Þær veita passlega miklar upplýsingar en taka þó með það helsta og miða gjarnan við ferðalanginn sem er að “spara”. Ég hef líka góða reynslu af grænu handbókunum frá Michelin, sérstaklega ef um er að ræða að fletta markvisst upp einum og einum stað.
Ferðamálaráð og upplýsingamiðstöðvar
Ferðamálaráð Króatíu - mjög góður upplýsingavefur til að byrja á. Ég fletti gjarnan upp upplýsingamiðstöð ferðamála á hverjum áfangastað fyrir sig, sendi þangað tölvupóst og bið um bæklinga. Bæklingarnir koma svo í hefðbundnum sniglapósti eftir 1-3 vikur ef allt gengur að óskum. Sérstaklega er gagnlegt að fá á þennan hátt kort af bæjum og borgum fyrirfram og geta spáð og spekúlerað áður en komið er á staðinn.
Fréttir og veður
Fréttir frá Króatíu á ensku í gegnum Topix.net.
Veðrið í Króatíu frá BBC – þar sem hægt er að skoða 5 daga spá fyrir 11 staði í landinu.
Króatíska
Króatíska heitir tungumál Króata. Ef einhverjir vilja spreyta sig á króatísku, má benda á vefsíðuna Languages-on-the-web.com.
Gjaldmiðill
Kuna - skammstafað HRK. Sjá gjaldmiðilsbreyti.
Gagnlegar slóðir
Undirbúningur ferðar
Hvar er næsti hraðbanki?
Heilsan á ferðalagi
Veikindi á ferðalögum
Hvar er næsta "netcafe"?





