Ferðalangur hefur áður skrifað grein um Mónakó en það er tilvalið að skoða einnig greinina My kind of town: Monaco eftir Tania Cagnoni af vefsíðu Telegraph.co.uk.
Tania lýsir því hvernig heimsókn utan helsta ferðamannatímans til Monaco getur verið góð hugmynd, því ólíkt öðrum stöðum á Frönsku rívíerunni, "Côte d'Azur", loki ekki allt yfir vetrartímann.
Gisting í Mónakó
Hótel frá Venere og Hotel Club,
Mælt er með að skoða hvað sé á dagskrá í listahöllinni Grimaldi Forum eða miða á sýningar með Monte Carlo Ballet Company sem sýnir t.d. í Salle des Princes í desember og janúar.
Ef að ferðalangar hafa löngun til að eyða aleigunni (eða svo gott sem!) í gistingu á Hôtel de Paris, þá er það mjög auðvelt, bara að muna eftir samkvæmiskjólnum áður en farið er niður í morgunmat....
Upplýsingar fyrir ferðamenn
http://www.visitmonaco.com/





