Montmartre, Paris
Montmartre hæðin í París hefur vinninginn fram yfir aðra staði hjá Mick Webb í greininni Five Best: French viewspoints sem fjallar um góða útsýnisstaði allt frá París til Provence héraðs. Sérstaklega útsýnið frá kirkjunni stórkostlegu, Le Sacré Coeur. Sigurboginn gefur að vísu betri sýn yfir miðborgina, Eiffelturninnn er jú hærri - en Montmartre gefur skemmtilegri heildarsvip.
Best er að rölta upp hæðina frá neðanjarðarlestarstöðinni Abbesses (lína 12) að torginu Place du Tertre. Þar er yfirleitt mikið um manninn og portrett málarar setja mikinn lit á umhverfið þótt þeir eigi ekki mikið sameiginlegt með fyrri íbúum þessa borgarhluta s.s. Picasso, Braque, Van Gogh og Degas.
Continue reading "Útsýnisstaðir í Frakklandi" »
Snemma á 19. öld hófu ferðamenn að flýja óreiðuna í Napolí til Sorrento og þeir hafa eiginlega aldrei farið síðan. Íbúarnir telja að töfrar lagsins Come Back to Sorrento hafi eitthvað með málið að gera en trúlega er það ekki síður þægilegt andrúmsloft bæjarins sem er ágætis tilbreyting frá klettum og eldfjöllum í nágrenninu.
Sorrento stendur á sjávarhömrum á ákaflega fallegum stað sem tilheyrir Campania héraðinu. Bærinn á sér fornar rómverskar rætur sem sést best á skipulagi hans. Sem betur fer stóð bærinn nógu langt frá eldfjallinu Vesúvíusi til að komast hjá þeim ósköpum sem grófu Pompeii og Herculaneum undir ösku.
Continue reading "Komdu aftur til Sorrento" »
Caprí er nokkurs konar "eftirréttur" Amalfistrandarinnar. Eyjan var á meðal fyrstu þekktu ferðamannastaða heims og festi sig endanlega í sessi þegar hinn litríki hellir Blue Grotto fannst árið 1826.
Segja má að Capri hafi oft skipt um "persónuleika" í gegnum tíðina. Í dag er andrúmsloftið ennþá svolítið "glamúrlegt" en ekki eins opinskátt og áður. Umhverfi Caprí er þó eins töfrandi og áður - Faraglioni klettarnir sem rísa brattir upp úr sjónum, hin miðaldalegi bær Certosa, glitrandi sjávarhellar og ein af villum Tíberíusar keisara, Villa Jovis, sem er ein af tólf sem hann lét byggja þegar Caprí var hinn raunverulegi höfuðstaður rómverska keisaradæmisins.
Continue reading "Eyjan Capri" »
Héraðið Abruzzo á Ítalíu getur verið ákjósanlegur kostur fyrir fjölskyldudvöl t.d. í septembermánuði þegar hitinn er farin að lækka og ferðamönnum fækkar. Það er ódýrt að fljúga t.d. til Pescara með Ryanair frá London Stansted og börn eru afar velkomnir gestir í Abruzzo eins og raunar annars staðar á Ítalíu. Abruzzo er þar að auki nokkuð laust við gerviveröldina sem oft þjakar vinsæla staði sem reyna að gera ferðamönnum til geðs.
Continue reading "Abruzzo: Bændagisting og börn" »
Fjöllin virðast e.t.v ógnvekjandi fyrir ofan þorpið Positano, en "íslituðu" húsin í einum lóðréttasta bæ á Ítalíu virðast beinlínis hlægja þar sem þau nánast detta hvert ofan á annað alveg niður að sjónum.
Flest húsin standa ofar en sóknarkirkjan í Positano og þannig horfa flestir íbúarnir niður á kirkjuna sína - og má segja að svalirnar þeirra séu eins og stúkur fyrir ofan leiksvið sem er engu líkt.
Continue reading "Positano við Amalfi ströndina" »
Bærinn Ravello við Amalfiströndina stendur ekki við ströndina sjálfa en bætir það upp með görðum og útsýni sem fær fólk til að grípa andann á lofti.
Margir hafa sótt þangað innblástur, m.a. höfundur bókarinnar Lady Chatterley's Lover, D.H. Lawrence. Tónskáldið Wagner varð svo hrifinn af Villa Rufolo í Ravello og garðinum í kring að hann notaði umhverfið þaðan í óperu sína Parcifal. Og kvikmyndin "A Good Woman" notar sömu villu sem fyrirmynd að golfklúbbi í myndinni. Síðast en ekki síst - engir bílar eru í Ravello!
Continue reading "Ravello og rómantískasti garður á Ítalíu " »
Morgunmatur
A Brasileira heitir staður í Lissabon sem rithöfundar og listamenn sóttu gjarnan fyrir um 100 árum síðan. A Brasileira er einn besti staðurinn til að verða vitni að því þegar borgin vaknar til lífsins á morgnana. Staðurinn liggur milli hins líflega Bairro Alto og Chiado verslunarhverfisins. Fáið ykkur "croissant" með skinku, heitt kakó eða bica (portúgalskt espresso) og setjist niður fyrir utan.
A Brasileira, Rua Garrett 120.
Opið daglega frá kl. 8 - 14:00.
Continue reading "Hvar er best að borða í Lissabon?" »