Ferðalangi barst bréf frá fjölskyldu sem hefur mjög gaman af bátasiglingum á ám og vötnum í Evrópu. Þau hafa m.a. siglt í Skotlandi á Caledonian Canal, um vötnin þrjú milli austur- og vesturstrandar Skotlands. Einnig hafa þau siglt í Burgundy í Frakklandi. Ferðirnar voru pantaðar á netinu.Fjölskyldan var svo vinsamleg að vilja deila með lesendum þeim vefsíðum sem notaðar voru og eftirfarandi upplýsingar eru teknar beint upp úr bréfi fjölskyldunnar:
Skotland - Caledonian Canal:
Caley Cruisers
http://www.caleycruisers.com/
Góð þjónusta, góður vefur. Getum hiklaust mælt með þessum aðila.
Upplýsingar um siglingaleiðina og staðina í kring:
http://www.undiscoveredscotland.co.uk/inverness/caledoniancanal/index.html
Frakkland - margar siglingaleiðir og mörg bátafyrirtæki.

Hotels Afloat Ltd.
Umboðsaðili fyrir mjörg bátafyrirtæki.
Veitti okkur frábæra þjónustu og allt stóðst eins og stafur á bók. Fengum senda bæklinga heim frá öllum fyrirtækjunum, ábendingar um hvaða bátar væru lausir hvar og vænlegustu ferðirnar miðað við okkar þarfir.
Völdum að skipta við fyrirtækið Rive de France sem reyndist ágætt en við sáum að bátarnir hjá fyrirtækinu Locaboat voru mun nýrri og hentugri þannig að næst munum við skipta við það. Sum þessara fyrirtækja eru líka með siglingaleiðir í Hollandi, Þýskalandi, Írlandi og á Ítalíu.

Það er einnig gagnlegt að hafa upplýsingar um lestarferðir í Frakklandi til að komast á staðinn: http://www.voyages-sncf.com/
Í báðum tilvikum fengum við um klukkustundar kennslu bátinn og kynningu á siglingaleiðinni og það tók okkur ca. 1/2 dag að ná góðum tökum á þessu.
Sigling á þessum tveimur stöðum var mjög ólík að því leyti að í Skotlandi siglir maður að mestu á vötnum og skipastigar eru fáir en í Burgundy sigldum við eingöngu í skipaskurðum eða á ám og við fórum alls um 67 stiga á 137 km leið okkar frá Corbigny til Saint Florentin um Nivernais Canal og Burgundy Canal.