Það er veruleg ástæða til að hvetja fólk á öllum aldri til að heimsækja Science Museum í London. Þar er eitthvað fyrir alla aldurshópa og ókeypis aðgangur.
Safnið stendur á bak við Natural History Museum, við Exhibition Road., London SW7.
Hægt er að setja sig inn í hugsanagang spæjara s.s. læra að þekkja lygi frá sannleika, nota nætursjónauka, fljúga fjarstýrðri flugvél o.m.fl.
Einnig er hægt að skoða Spitfire flugvél sem búið er að taka í sundur, kynnast sögu flugmanna, hönnuða og annarra sem komu við sögu flugvélarinnar.
Möguleikarnir eru óþrjótandi í þessu merkilega safni þar sem ekki er bara hægt að "horfa" heldur einnig að "framkvæma".







Comments