Ferðasaga frá lesendum:
Síðastliðið sumar vorum við mæðginin á ferð um Suður-Þýskaland og Austurríki. Ætlunin var að eiga einn innihaldsríkan dag í Salzburg. Góð niðurstaða hótelleitar á Ferðalangi var lykillinn að góðum degi í þessari perlu sem Salzburg er. Hótelið Goldene Ente varð fyrir valinu. Þetta hótel er staðsett í Goldgasse, einni af þessum níðþröngu götum í hjarta gamla bæjarins.
Við komum þarna rétt fyrir hádegið og hótelstýran var svo vinsamleg að láta okkur fá herbergið strax þar sem það var tilbúið. Ótilkvödd gaf hún okkur einnig leiðbeiningar um hvernig skynsamlegt væri að eyða deginum. Hún sagði okkur að fara þarna "rétt fyrir hornið" og kaupa okkur Salzburgarkortið sem gæfi okkur aðgang að því helsta sem vert væri að skoða. Við byrjuðum á að fara í tæplega klukkustundarlanga siglingu á bát á ánni Salzach. Þessi ferð gaf okkur góða sýn á legu borgarinnar og ægifagurt landslagið í kring.
Sigling: http://www.salzburghighlights.at/de-schifffahrt-touren_tourplan.htm
Að bátsferðinni lokinni gengum við eftir hinni frægu og fallegu Getreidegasse þar sem fæðingarstað Mozarts er að finna. Að sjálfsögðu fórum við inn í húsið og skoðuðum safnið um snillinginn. Mozarthúsið er raunar steinsnar frá hótelinu okkar og gæti hótelið allt eins verið fæðingarstaður Mozarts, sem sé brattir stigar og herbergi með gluggahlerum sem opnast hátt uppi yfir þrönga götuna.
Allt er þetta á einum og sama blettinum sem við þurftum að skoða. Eftir labbitúr um göturnar og innlit í nokkrar kirkjur var kominn tími til að setjast niður á sjarmerandi götukaffihús. Við völdum okkur tertusneið af bakka sem þjónninn bar á milli borða og horfðum á hestakerrurnar hlassast framhjá. Auðvitað nutum við ilmsins af hestunum með herrlegheitunum...
Nú var nokkuð tekið að líða á daginn og eftir var að fara upp í kastalann Hohensalzburg sem gnæfir yfir borginni. Ekkert mál er að komast þarna upp því lyfta fer upp eftir kletti í miðjum gamla bænum. Frá kastalanum er auðvitað frábært útsýni yfir borgina þar sem virða má fyrir sér hvernig áin Salzach liðast hjá borginni og hvernig landið hækkar eða lækkar eftir því hvert er litið.
Nú var dagur að kveldi kominn. Kominn var tími til að skreppa heim á hótel og búa sig undir rúsínuna í pysluendanum, sem okkar ágæta hótelstýra hafði bent okkur á að væri tilvalin fyrir kvöldið. Þetta voru Mozart dinnertónleikar í barocksalnum í Stiftskeller St. Peter. Frábærir tónleikar, tónlistarfólkið í búningum frá tímum Mozarts og frábær matur á milli atriða. Við mælum með að leggja nokkuð tímalega af stað, þá er hægt að kíkja inn í kirkjuna áður en maður fer inn og nælir sér í gott borð. Einnig er áhugavert að ráfa svolítið um kirkjugarðinn þarna sem er mjög fallegur og stendur skemmtilega upp við klettinn upp að kastalanum. Við keyptum okkur disk með tónlist sem flutt var á tónleikunum og er honum oft brugðið á fóninn. (Ath.: dinnertónleikarnir eru ekki innifaldir í Salzburgarkortinu.)
Tónleikaslóð: http://www.salzburg-concerts.com/mdc/programm.htm
Með von um að einhverjir geti haft gagn og gaman af.
Guðrún Kjartansdóttir og Egill F. Ólafsson


