Nú þegar bæklingar hefðbundinna ferðaskrifstofa berast landsmönnum inn um lúgurnar hver á fætur öðrum, er ekki úr vegi að benda á grein um sumardvalarparadísina Portúgal, Portugal 2008: holiday planning guide.
Í greininni er m.a. rætt um að enn sé Portúgal með ódýrustu evru-löndum. Bent er á Alentejo héraðið, þjóðgarðinn Naturejo, þorpið Monsanto, eyjarnar Porto Santo og Madeira. Aftast í greininni er ýtarlegur listi yfir lágfargjaldaflugfélög sem fljúga til Portúgal frá Bretlandseyjum sem nýst getur þeim sem hyggja á ferðir á eigin vegum.
Mynd úr þjóðgarðinum Naturejo.


