Ferðalangur kynnir til sögunnar sérstaklega hagstæða gistingu í Bretlandi, keðjuna Travelodge, sem stofnuð var árið 1985. Gististaðir á þeirra vegum eru nú 318 talsins í Bretlandi og til stendur að opna 40 í viðbót á árinu 2008.
Verð á gistingu þar er óvenju hagstætt, oftast á bilinu 29 - 59 pund fyrir 2ja manna herbergi fyrir nóttina en ódýrustu gistinguna verður þó að bóka og borga um leið og engu hægt að breyta.
Morgunmat er hægt að bóka á netinu um leið og herbergið (10% ódýrari en að kaupa hann beint á staðnum) en hann fylgir ekki með sjálfkrafa.


