Ferðalangur vill vekja athygli lesenda sinna á pistli sem birtist í Morgunblaðinu í dag, fimmtudaginn 13. mars 2008 og heitir Ferðaflugur - Debetkrot og reiðufé ódýrasta leiðin. Pistillinn er liður í samstarfi Ians Watson, sem hefur m.a. langa reynslu sem ferðahandbókahöfundur og fararstjóri og Ferðalangs - Margrétar Gunnarsdóttur. Pistillinn er aðgengilegur í Greinasafni Morgunblaðsins.
Eins og nafn pistilisins ber með sér fjallar hann um gjaldeyrismál erlendis - hvað best er að gera í þeim efnum á erlendri grund. Niðurstaðan er í stuttu máli sú að langheppilegast er að nota debetkortið til að greiða fyrir vörur, hótel o.fl. erlendis en kemur svipað út að kaupa svolítið reiðufé hérlendis áður en lagt er í'ann og að taka reiðufé út úr hraðbanka erlendis með debetkorti. Meira um þetta í pistlinum:
http://www.mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?radnr=1199803


