Íslenskir ferðalangar ættu að hafa bak við eyrað að flestar evrópskar
borgir bjóða upp á tjaldstæði einhvers staðar í útjaðri borganna sem
þýðir auðvitað ódýrari gistingu og e.t.v. áhugaverðan möguleika í
leiðinni.
Sumar borgir hafa m.a.s. all nokkur slík tjaldstæði og þó að þau séu gjarnan út við borgarmörkin, þá er yfirleitt auðvelt að taka strætó eða neðanjarðarlest beint inn í borg.
Í París er t.d. hægt að tjalda á bökkum Signu í garðinum Bois de Boulogne (www.campingparis.fr). Í Flórens er tjaldstæði í hverfinu Oltrarno með útsýni yfir kirkjuklukkur og turna þessarar fallegu borgar (www.ecvacanze.it/ing/michelangelo_home.asp). Feneyjar bjóða tjaldstæði við ströndina á eyjunni sem stendur næst Lido, aðeins stutt bátsferð frá Markúsartorginu (www.camping-miramare.it).
Mörg tjaldstæðin eru aðeins starfrækt frá vori og fram á haust en önnur eru opin allt árið.
Gjaldtakan fyrir tjaldstæðin getur verið svolítið ruglingsleg þar sem viðskiptavinurinn þarf venjulega að borga gjald fyrir tjaldstæði, annað gjald fyrir hvern gest og e.t.v. enn annað gjald fyrir bílinn... en yfirleitt er þetta á mjög skikkanlegu verði. Og ef tjaldið skyldi hafa gleymst er venjulega hægt að leigja eitt slíkt fyrir sanngjarnt verð.
Sum tjaldstæði bjóða líka ódýr smáhús á leigu sem geta tekið tvo - sex manns á verði sem er ávallt ódýrara en ódýrasta hótel. Þar með hafa gestir líka aðgang að allri aðstöðu tjaldstæðisins s.s. sundlaug, verslunum með nauðsynjavörur, útiborðum, börum og jafnvel veitingastöðum... og síðast en ekki síst hafa gestir gott tækifæri til að kynnast öðrum ferðalöngum.
Hægt er að sjá lista yfir tjaldstæði hjá ferðamálaráði hvers lands (t.d. í gegnum www.worldtourismdirectory.com). Einnig má finna upplýsingar um yfir 8500 tjaldstæði á www.eurocampings.net og ein 1500 tjaldstæði á pólsku síðunni www.eurocamps.net.


