« Íbúðaskipti til árs - Háaleitisbraut fyrir Kringsjå í Osló | Aftur á aðalsíðu

Ítölskunámskeið

Margret_gunnarsdottir_200bÍtölskunámskeið fyrir ferðalanga hefjast í september.

Kennari:
Margrét Gunnarsdóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur/fararstjóri.

Kennslustaður:
Kennt verður í Tóney, Síðumúla 8 (fyrir ofan Veiðihornið).

Skráning og nánari upplýsingar:
ferdalangur@simnet.is - Margrét, sími          898 9460      

Námskeiðin hafa mælst afar vel fyrir hjá þeim sem nú þegar hafa heimsótt Ítalíu og hrifist af landi og þjóð en ekki síður hjá þeim sem enn eiga það eftir. Þau miðast einkum við þarfir ferðalanga, með hæfilegri blöndu af hlustun, tali og málfræði.

Lesa áfram...

  • Einfalt og aðgengilegt námsefni - Gagnlegar og praktískar æfingar.
  • Létt og skemmtilegt andrúmsloft - fróðleikur um Ítalíu.

Að þessu sinni eru fjölbreyttir möguleikar í boði:

  • hópkennsla
  • hópkennsla fyrir eldri borgara 60+
  • einkakennsla
  • hraðnámskeið
  • fjarkennsla

Ítalska I - hraðnámskeið 2x í viku
kennt verður á mánudögum og fimmtudögum kl. 17:00 - 18:30 í 10 skipti (20 kennslust.)
Kennslutímabil: 15. september - 16. október.
Verð: 30.000 kr, námsgögn innifalin (kennslubók + hlustunarefni).


Ítalska I - hópur 1x í viku

Kennt verður á mánudögum kl. 18:30 - 20:00 í 10 skipti (20 kennslust.)
Kennslutímabil: 15. september - 17. nóvember
(ATH: Ítalska II verður í boði sem hraðnámskeið í beinu framhaldi).
Verð: 30.000 kr, námsgögn innifalin (kennslubók + hlustunarefni).


Ítalska I - fyrir eldri borgara 1x í viku

Kennt verður á fimmtudögum kl. 15:00 - 16:30 í 10 skipti (20 kennslust.)
Kennslutímabil: 18. september - 20. nóvember
Verð: 30.000 kr, námsgögn innifalin (kennslubók + hlustunarefni).

ATH: Á vorönn 2009 verður boðið upp á Ítölsku II og Ítölsku III

***********************************************************************


Ítalska I - í fjarkennslu 1 x í viku, 10 skipti (1 klst. í senn).


Í boði eru tímar í fjarkennslu - upplagt fyrir landsbyggðina og þá sem eiga ekki heimangengt.
Tímasetning: Samkomulag (þó ávallt sami tími).
Fjöldi nemenda: Þrír í einu.
Kennslumáti: Kennt er með aðstoð tölvu og Skype svo nemendur þurfa að eiga tölvu, hafa Skype (ókeypis forrit á Netinu) og vera tengdir við Internetið á meðan kennsla fer fram.
Kennslutímabil: Frá og með 3. viku í september og fram til 1. desember.
Verð: 28.000 kr. námsgögn innifalin (kennslubók + hlustunarefni).
ATH: Upplagt fyrir þrjá sem þekkjast að taka sig saman og hafa samband.
Vinsamlegast hafið samband við Margréti s. 898 9460eða ferdalangur@simnet.is.


Ítalska - einkatímar

Nokkrir einkatímar lausir. Leitið upplýsinga hjá Margréti s. 898 9460 eða sendið tölvupóst á ferdalangur@simnet.is

Hótelvefurinn - allar tegundir gistingar erlendis
Sækja "ferðastikuna"

ágúst 8, 2008 in * Ítalía, Ítölskunámskeið | Prentvænt