Það að setjast niður milli 3-5 síðdegis og fá sér tesopa og "með því" er svona um það bil sá enskur siður sem gæti talið "enskastur" ... Myndin hér til hliðar er frá Ritz hótelinu en síðdegissopinn gerist vart flottari en einmitt þar.
Ef þú ert í sporum ferðalangsins og hefur t.d. þrammað um stræti London, inn og út úr verslunum og söfnum, þá áttu einfaldlega skilið að setjast niður og fá þér góðan tebolla. Þú mátt eiga von á góðu úrvali tetegunda, litlum samlokum þar sem búið er að skera skorpuna af, heitum skonsum með rjóma og sultu, úrvali af kökum, smákökum og öðru slíku sætmeti.
Besti staðurinn í London til að fá sér te er auðvitað Buckingham Palace en það er líklega þrautin þyngri að verða sér úti um boð í garðpartíin þar.
Flottustu hótelin í London eru fræg fyrir síðdegistesopann - t.d. Ritz, Savoy og Waldorf hótelin en verðið þar er eftir því. Hinsvegar er ógleymanlegt að leyfa sér að upplifa stemninguna svona einu sinni...
Hér fyrir neðan eru dæmi um nokkra vel valda staði þar sem hægt er að njóta þess að setjast niður og fá sér síðdegiste í London:
Victoria og Albert Museum
Þetta var fyrsta safnið í heiminum til að bjóða upp á te og kaffiaðstöðu og umhverfið ekki amalegt fyrir fagurkera!
Heimilsfang: Cromwell Road, London SW7 2RL.
Neðanjarðarlestarstöð: South Kensington
*******
Fortnum and Mason
...þar sem Elísabet drottning kaupir inn... ekki kannski sjálf en hennar fólk :-).
Verslunin var stofnuð 1705 og er enn á sama stað. Þarna eru 4 veitingastaðir, nýuppgerðir og hægt er að fá síðdegiste á St. James' restaurant frá 2 - 7.
Snjallt væri að bóka daginn áður - því oft er mjög þéttsetinn bekkurinn og ef þú ætlar að setjast niður á laugardegi þarftu að bóka með nokkurra vikna fyrirvara.
Heimilisfang: 181 Piccadilly, London W1A 1ER
Neðanjarðarlest: Piccadilly Circus eða Green Park
*******
Waterstones Piccadilly
Stærsta bókaverslun í Evrópu er ágætis stefnumótsstaður í miðri London. Útsýnið af 5. hæðar barnum er stórfenglegt og sést yfir þinghúsið og London Eye. Það má taka með sér bók og fletta í henni yfir kaffinu þó hún hafi ekki verið keypt.
Heimilisfang: 5. hæð, Waterstones, 203-206 Piccadilly, London W1J 9LE.
Neðanjarðarlestarstöð: Piccadilly Circus eða Green Park
*******
Patisseriie Valerie
Í hjarta Soho er þessi vel geymdi staður. Hann er raunar meira eins og franskt kaffihús í Toulouse-Lautrec stíl... Það má líka láta duga að skoða í gluggana á þessu kaffihúsi og gefa bragðlaukunum kikk með því móti.
Heimilisfang: 44 Old Compton Street, Soho W1D 4TY
Neðanjarðarlestarstöð: Tottenham Court Road.


