Hafið þið ekki stundum tekið myndir á merkilegum og frægum stöðum og óskapast yfir öllum "túristunum" sem þvælast fyrir á myndunum? Nú er komin lausn á því þó Ferðalangur sjálfur hafi ekki prófað enn :-). Tourist Remover heitir það og er hluti af þjónustu (ókeypis) sem vefsíðan Snapmania.com veitir en þar er hægt að geyma myndir á vefnum (100 mb ókeypis) og skipuleggja þær og raða.
Þið takið nokkrar myndir af viðfangsefninu, hlaðið þeim inn á ykkar svæði hjá Snapmania.com og Tourist Remover blandar þeim saman og lætur "túristana" hverfa. Áhugasamir geta skráð sig fyrir eigin notendasvæði hér: https://my.snapmania.com/en/signup/.


