Á hverju ári, þann 2. júlí og 16. ágúst, þyrpist aragrúi fólks til ítölsku miðaldaborgarinnar Siena í Toskanahéraði á Ítalíu til að horfa á afar litríkar kappreiðar sem eiga sér forna sögu, Il Palio. Kappreiðarnar eiga sér stað á miðju aðaltorgi Siena, La Piazza del Campo sem þakin er mold og sandi af þessu tilefni.
Þarna keppa mismunandi borgarhlutar Siena sín á milli eftir ákveðnum reglum. Hrossin fara þrjá hringi um torgið og kapphlaupið sjálft tekur ekki nema ca. 90 sekúndur sem er ekki mikið þegar horft er til þess hve mikillar athygli atburðurinn nýtur í fjölmiðlum heima fyrir og erlendis. Dagarnir fyrir hlaupið eru að sjálfsögðu undirlagðir af gleði og spennu fyrir keppnina og ferðamenn í Siena á þessum tíma komast ekki hjá því að anda að sér þessu einstaka andrúmslofti.
Hér fyrir neðan má sjá stutt YouTube myndband af þessu einstæða kapphlaupi.


