Hér fyrir neðan eru nokkur þeirra hótela sem Íslendingar, lesendur Ferðalangs, hafa heimsótt á undanförnum árum.
Absalon Hotel***
Eitt af fáum fjölskyldureknum hótelum í Kaupmannahöfn. Aðeins nokkurra mín. gangur í Tívolí.
CABINN City Hotel**
Staðsett í nágrenni Tívolí. Reyklaust.
Carlton Hotel Guldsmeden***
Hótelið stendur við Vesterbrogade, nokkurra mín. gangur til Tívolí og aðal járnbrautarstöðvarinnar. Skemmtilegt umhverfi, nóg af kaffihúsum og skemmtilegum smábúðum. Gott morgunverðarhlaðborð.
City Hotel Nebo**
Rétt við aðal járnbrautarstöðina í hjarta Kaupmannahafnar. Aðeins 12 mín. ferð með lest frá flugvellinum. Allt það helsta í þægilegu göngufæri.
Clarion Collection Hotel Twentyseven****
Í hjarta Kaupmannahafnar, rétt hjá Tívolí, Strikinu og Ráðshústorginu. Reyklaust.
Comfort Hotel Østerport***
Nýlega endurnýjað og reyklaust hótel. Þráðlaust Internet. Staðsett í austurhluta Kaupmannahafnar, rétt hjá Litlu hafmeyjunni, Amalienborg kastala, óperunni, Kongens Nytorv og göngugötunni. Bein lest frá flugvellinum til Østerport station (20 mín.) sem er á móti hótelinu.
Hotel Astoria***
Nýlegt hótel í hjarta Kaupmannahafnar, rétt hjá aðal járnbrautarstöðinni og Tívolí. Strikið og Ráðhústorgið í göngufæri. Morgunverðarhlaðborð. Reyklaust hótel.
Hotel Centrum***
Aðeins 400 m í Tívolí og 7 km fjarlægð frá flugvellinum. Reyklaust.
Hotel du Nord***
Staðsett í hjarta Kaupmannahafnar í nokkurra mín. göngufæri frá aðal járnbrautarstöðinni og Tívolí.
Ibsens Hotel***
Fjölskyldurekið hótel, rétt við „Latin Quarter“. Allt það helsta í göngufæri
Saga Hotel**
Fjölskyldurekið hótel rétt hjá aðal járnbrautarstöðinni og Tívolí. Reyklaust.
The Square****
Nýlegt hótel á Ráðhústorginu. Nálægt Strikinu, Tívólí og aðal járnbrautarstöðinni.



