Ný og endurbætt ferðastika Ferðalangs er tilbúin til niðurhals fyrir vafrana Internet Explorer, Firefox og Google Chrome
http://ferdastikan.ourtoolbar.com/
Þeir sem eiga hana fyrir (1. útgáfu) ættu ekki að þurfa að hala henni niður aftur - ef hún endurnýjast ekki sjálfkrafa er gott að smella á "Refresh Toolbar" undir örinni hjá Ferðalangur út við vinstri enda stikunnar.
Á ferðastikunni er allt það sem ferðalangar þurfa á að halda (tjah - allavega flest!) þegar ferðalagið er skipulagt, gistimöguleikar, tilboð á gistingu, íbúðaskipti, bílaleiga og allsherjar verkfærakista sem gott er að hafa við hendina.


