Hverjar eru algengustu ástæður þess að farangur týnist? Skv. grein af mnsbc.com - Travel tips, eru aðallega fjórar ástæður fyrir því týndum farangri:
1. Miðinn með nafni ákvörðunarstaðar (sem settur er á af flugvallarstarfsmanni þegar töskur eru tékkaðar inn) hefur prentast illa út - er ólæsilegur eða rifnar af einhvers staðar á leið í gegnum "kerfið". Ef til vill er taskan ný í þokkabót og eigandinn hefur gleymt að merkja hana...
Continue reading "Af hverju týnist farangurinn?" »
Ferðalangur fékk sérlega skemmtilegan pistli frá íslenskri konu um ferð stórrar fjölskyldu til Króatíu nú í sumar og var góðfúslega veitt leyfi til að birta ferðasöguna ef vera kynni að hún gæti gagnast fleirum sem e.t.v. hyggja á ferð til Króatíu í framtíðinni.
Við vorum 7 fullorðin og 6 börn ( við hjónin, börnin okkar, tengdabörn og barnabörn). Við höfum farið nokkrar ferðir til útlanda öll saman og alltaf tekið hús á leigu, m.a. við Gardavatn, í Toscana og á Cape Cod, allt hafa þetta verið frábærar ferðir en við vorum sammála um að Króatíuferðin væri sennilega sú albesta.
Áfangastaðurinn í Króatíu var stórt hús með fínum garði og sundlaug í pínulitlu miðaldaþorpi, Tinjan, á miðjum Istriaskaganum.
Hluti fjölskyldunnar flaug út 2. júní, til München, þar sem teknir voru tveir stórir bílaleigubílar og ekið suður Austurríki með einni gistinótt í ágætri bændagistingu og síðan suður Slóveníu. Þar var að sjálfsögðu stoppað í Bled. Hinn hluti fjölskyldunnar flaug til Pula í Króatíu 3. júní, með millilendingu í Osló. Það er nefnilega regla í fjölskyldunni að við fljúgum aldrei öll saman í sömu vél (gamla konan ég fæ að ráða því!).
Continue reading "Með stórfjölskylduna til Króatíu" »