Vínarborg hefur mikið aðdráttarafl fyrir ferðalanga og sjálfsagt eru sækjast þeir eftir ólíkum hlutum á sínum ferðalögum. Fyrir marga er það þó trúlega arkitektúrinn, listirnar og sagan sem heilla. Ekki má heldur geyma matargerðinnni. En það sem togar án efa mest eru tækifærin sem gefast til að njóta lifandi tónlistar í Vín.
Continue reading "Vínarborg - lifandi tónlist" »
Ferðasaga frá lesendum:
Síðastliðið sumar vorum við mæðginin á ferð um Suður-Þýskaland og Austurríki. Ætlunin var að eiga einn innihaldsríkan dag í Salzburg. Góð niðurstaða hótelleitar á Ferðalangi var lykillinn að góðum degi í þessari perlu sem Salzburg er. Hótelið Goldene Ente varð fyrir valinu. Þetta hótel er staðsett í Goldgasse, einni af þessum níðþröngu götum í hjarta gamla bæjarins.
Við komum þarna rétt fyrir hádegið og hótelstýran var svo vinsamleg að láta okkur fá herbergið strax þar sem það var tilbúið. Ótilkvödd gaf hún okkur einnig leiðbeiningar um hvernig skynsamlegt væri að eyða deginum. Hún sagði okkur að fara þarna "rétt fyrir hornið" og kaupa okkur Salzburgarkortið sem gæfi okkur aðgang að því helsta sem vert væri að skoða. Við byrjuðum á að fara í tæplega klukkustundarlanga siglingu á bát á ánni Salzach. Þessi ferð gaf okkur góða sýn á legu borgarinnar og ægifagurt landslagið í kring.
Sigling: http://www.salzburghighlights.at/de-schifffahrt-touren_tourplan.htm
Continue reading "Dagur í Salzburg - lesendur hafa orðið" »
Það er að verða jólalegt í Salzburg. Ef lagt er við hlustirnar má heyra hirðtónlist í fjarska, blástursleikara uppi í turnum og þjóðlög, aðventu- og jólasálma á götunum.
Á jólamarkaðinum - Christkindlmarkt - má finna ilminn af heitu og krydduðu víni. Sölubásarnir eru fagurlega skreyttir með bæði nýjum og gömlum hlutum.
Markaðurinn 2005 stendur frá 19. nóvember - 24. desember og er upplagður viðkomustaður þeirra sem hafa gaman af hefðum og jólalegu andrúmslofti.
Hótel í Salzburg
Bookings.net, Venere, HostelWorld og Hotel Club. Sjá einnig www.hotelvefurinn.net.
Continue reading "Salzburg í hátíðarbúningi" »
Það verður enginn svikinn af heimsókn til Vínar á aðventunni. Þar má á einfaldan hátt sameina jólainnkaupin, tónleikaferðir og ýmis konar menningarviðburði. Ekki spillir fyrir "gemütlichkeit" og hlýleg stemning á kaffihúsum borgarinnar.
Hótel frá Venere og Bookings.net.
Continue reading "Vínarborg á aðventunni" »
Almennur fróðleikur
Yfirlitskort um Austurríki eða kort af tilteknum svæðum í Austurríki
Gisting
Gisting í Austurríki
Til leigu sumarhús og íbúðir frá E-domizil
Til leigu sumarhús og íbúðir frá MyVillaRenters.com
Continue reading "Austurríki - Yfirlit" »
Desembermánuður er e.t.v. ekki mánuðurinn sem fólk nýtir almennt til að fara á skíði til útlanda. Þó er hugsanlegt að einn og einn vilji nýta sér rólegheit og næði, viðarilm og arineld, sem finna má í Obergurgl í Tíról á þessum árstíma eins og lesa má um í greininni Where to find snow before Christmas eftir Nick Rufford af vefsíðu Times Online.
Gisting í Hotel Alpenland, Obergurgl
Continue reading "Á skíði fyrir jól?" »
Íbúar í Salzburg búa sig nú undir að halda veglega upp á 250 fæðingarafmæli Mozarts árið 2006 og munu hátíðahöldin standa yfir meira og minna allt árið.
Mozart fæddist í Salzburg og bjó þar mestan hluta ævi sinnar en það borgar sig að tala sem minnst um að hann hafi dvalið síðustu æviár sín í Vín og látist þar... það má alveg kyrrt liggja. - Það er í lagi að nefna annan "son" borgarinnar, Johann Michael Haydn, en reynið ekki að halda því á lofti að kvikmyndin Sound of Music hafi verið tekin í og við Salzburg - íbúar Salzburg vilja langtum frekar tengja borgina Töfraflautunni en Edelweiss!
Continue reading "Salzburg í Mozartbúningi" »
Það er líklegt að þeir sem leggja leið sína til Vínarborgar, láti ekki nægja að skoða borgina "utan frá", heldur hafi líka áhuga á að sækja tónleika, fara í Óperuna, líta inn í Keisarahöllina, skoða glæsileg híbýli í Schönbrunn höllinni ... svo eitthvað sé nefnt.
Hótel og ýmiskonar gisting í Vín
Mér hefur reynst vel að byrja dvöl í Vínarborg á því að heimsækja upplýsingamiðstöð ferðamála: Tourist Info Vienna, Vienna 1, Albertinaplatz / Maysedergasse, í grennd við Ríkisóperuna. Opið daglega frá kl. 9 - 17. Þar er hægt að fá margskonar bæklinga og hægt að gera sér grein fyrir hvað er á döfinni.
Continue reading "Vínarborg - "Að innan"" »
Fyrir þá sem vilja fljúga til Vínar á eigin vegum er hægt að með lágfargjaldaflugfélögum eins og t.d. Air Berlin frá London.
Hótel og ýmiskonar gisting í Vín
Vínarborg á sér langa og merka sögu eins og raunar allar hinar gömlu og grónu evrópsku borgir sem Íslendingar og aðrir njóta svo mjög að sækja heim.
Continue reading "Vínarborg - Venia - Vindobona" »
Það er ekki víst að margir hafi lagt leið sína til Rust - minnstu borgar í Austurríki (1700 íbúar). En það gleður svo sannarlega hjörtun, stór og smá, að kíkja þangað því þar gefur að líta storkahreiður á nánast hverju húsþaki. Eitthvað sem við Íslendingar sjáum ekki á hverjum degi. Enda er bærinn kallaður "borg storkanna og eðalvínsins".
Þessi litli, notalegi og fallegi bær er einn af vinsælustu viðkomustöðum í Burgenland héraðinu í Austurríki. Hann stendur við bakka Neusidlersee, sem er stöðuvatn á mörkum Austurríkis og Ungverjalands og þar er m.a. hægt að fara á seglbretti, í siglingar eða bara njóta sólar á góðum degi.
Continue reading "Rust - storkar og vín" »
Ef þú átt leið um Austurríki, nánar tiltekið um Týról – þá máttu ekki láta hjá líða að koma við í bænum Seefeld.
Þessi bær er sannkallaður unaðsreitur fyrir göngugarpa, hjólagarpa og alla þá sem kunna að láta sér líða vel í smærri bæjum. Það tekur aðeins um hálftíma að aka til Seefeld frá Innsbruck.
Og hvar á að gista? Ah…. ef pyngjan er ekki þess léttari, þá skal játast að sjaldan hef ég komið inn á skemmtilegra hótel en Die Post – kannski vegna þess að innréttingar og herbergin öll eru svo skemmtilega austurrísk – hlýleg og falleg. Þjónustan í toppi líka. Hótelið stendur nánast alveg í miðbæ Seefeld (já - og frábært salathlaðborð!)
Continue reading "Seefeld - “Ein Prosit der Gemütlichkeit…”" »