Við horfum mörg löngunaraugum til sólarlanda eða stuttra borgarferða til að slaka aðeins á í öðru umhverfi. Þó er ekki víst að allir sem vilja geti leyft sér það um þessar mundir. Sumir geta það þó með því að sýna hagsýni og velja sér ódýrari ferðir og ódýrari gistingu.
Það er nefnilega hægt að njóta lífsins þó að rúmfötin á hótelinu séu ekki úr silki eða satíni og veggirnir séu ekki fóðraðir með listaverkum eftir Miro eða Picasso. Með öðrum orðum: Kannski getum við skroppið til sólarlanda án þess að fjárhagurinn fari á hvolf.
Ferðalangur vill benda þeim sem eru í sparnaðarhugleiðingum á að bera saman við íslenskar ferðaskrifstofur það sem nú býðst hjá EasyJet Holidays.
Flestir þekkja lágfargjaldaflugfélagið EasyJet og nú býður það í samstarfi við fleiri ódýrari sólarlandaferðir og borgarferðir þar sem lagt er upp frá fjölmörgum flugvöllum í Bretlandi. Má þar nefna m.a. London Gatwick, Stansted, Manchester, Glasgow og Edinborg. Það getur t.a.m. verið snjallt að sameina sólarlandaferðina og ferð til London eða Glasgow/Edinborgarmeð EasyJet Holidays og slá þannig tvær flugur í einu höggi.
Continue reading "EasyJet Holidays: Ódýrari sólarferðir - ódýrari borgarferðir " »
París og nokkur hernaðarleyndarmál sem gera góða Parísarferð enn betri
1. Heitt kakó...Fáðu þér bolla af heitu, frönsku kakói. Þetta á einkum við á haustin. Það er fátt meira afslappandi en bolli af heitu og vel löguðu súkkulaði á notalegu kaffihúsi og horfa á mannlífið fyrir utan. "Chocolat chaud" er fáanlegt út um allt en hér mætti t.d. nefna lítið og huggulegt kaffihús, Ragueneau, rétt handan við hornið frá hinni fallegu höll Palais Royal. Kakóið er verulega gott og skammturinn rausnarlegur. Spurðu eftir Viennoise ef þú vilt þeyttan rjóma með. Þarna er á ferðinni ekta mjólk og súkkulaði - ekkert "gervi" því Parísarbúar taka súkkulaðið sitt hátíðlega: Ragueneau, 220 rue St Honore, 75001; París.
2. Skemmtu þér konunglega við að skoða París í 2 CV. Feneyjar hafa sína rómantísku gondóla, London 2ja hæða strætisvagna en í París geturðu pantað þér 2 CV. Það er sannarlega ekki þægilegasti ferðamátinn og ekki hægt að flokka undir lúxuskerru. Þetta er hins vegar ósköp franskt! Það er engin hætta á að þú sofnir og missir af útsýni úr þessum frumstæða bíl - en þú munt klárlega njóta þess í botn. Hægt er að panta bíl með bílstjóra frá 30 mínútum - 4 klst. Ýmis konar leiðir eru í boði. Smelltu hér.

Continue reading "París - gerðu góða ferð enn betri" »
Það eru tveir aðalflugvellir í París:
- Charles de Gaulle (CDG) sem er alþjóðlegi flugvöllurinn sem mest er notaður
- Orly (ORY)
Báðir flugvellirnir bjóða góðar almenningssamgöngur inn í borg. Hér eru nokkrar ábendingar:
Continue reading "Ferðir til og frá flugvöllum Parísar og inn í miðborgina" »
Ferðalangur brá sér í heimsókn til rithöfundarins Victors Hugo fyrir skömmu. Nánar tiltekið heimsótti hann gamla íbúð hans á torginu fallega Place des Vosges í París sem heitir einfaldlega Maison Victor Hugo.
Í íbúðinni er safn tileinkað honum og ævi hans. Á veggjum safnsins má líta ýmsa fjölskyldumeðlimi s.s. móður og föður, afa og ömmur og börn hans. Og náttúrulega hjákonuna. Með henni átti hann ástarævintýri í heil 50 ár. FIMMTÍU ÁR. Juliette Drouet hlýtur að hafa verið óvenjuleg kona. A.m.k. ástfangin kona. Annars þýðir líklega lítið 21. aldar konu að ætla sér að setja sig inn í þankagang 19. aldar í Frakklandi og þaðan af síður að setjast í dómarasæti.
Reyndar er sagt er að sumar franskar hefðarfrúr hafi verið ósköp fegnar að þurfa ekki að sinna vissum skyldum sínum og jafnvel valið fyrir menn sína ástkonur. Svo var þó ekki í þessu tilviki. Victor sá um það sjálfur.
Continue reading "Í heimsókn hjá Victor Hugo í París" »
Ferðalangur átti stefnumót við Mónu Lísu í Louvre safninu í París fyrir nokkru síðan í októbermánuði. Það hafði svo sem lengi staðið til að skoða hjá henni stofurnar og stássið en svolítið kveið Ferðalangur fyrir og vissi sem var að líklega yrðu gestirnir margir. Og það reyndist rétt. Hvernig er það þá um hásumar?
Senda á Facebook
Continue reading "Ferðalangur í Louvre" »
Ódýr hótel í París næstu 6 vikur. Upplýsingarnar uppfærast dag frá degi.
Continue reading "París: Ódýr hótel næstu 6 vikur" »
Sumir kjósa að leigja íbúð í nokkra daga í stað þess að dvelja á hefðbundnu hóteli. Það getur verið góður valkostur, t.d. fyrir fólk með börn eða þá sem kjósa að hafa frjálsari hendur með morgunmat og aðrar máltíðir dagsins. Loks er oft ódýrara að dvelja í íbúð ekki síst ef nokkrir leigja hana saman.
Hér fyrir neðan koma nokkrar vefsíður sem gott er að kíkja á í þessu sambandi.
Continue reading "Íbúðir í stað hótelherbergja?" »
Í júlí s.l. (2007) hófu Parísarbúar að nota nýja þjónustu sem hlotið hefur nafnið Velib og felst í því að íbúar Parísar sem og ferðalangar geta fengið sér hjól á einum 750 Velib stöðvum um alla París og skilið þau eftir á einhverri annarri stöð í borginni. Í lok árs 2007 er áætlað að stöðvarnar verði orðnar tæplega 1500 og hjólin rúmlega 20.000.
Continue reading "Hjólað í París" »

Ferðalangi barst bréf frá fjölskyldu sem hefur mjög gaman af bátasiglingum á ám og vötnum í Evrópu. Þau hafa m.a. siglt í Skotlandi á
Caledonian Canal, um vötnin þrjú milli austur- og vesturstrandar Skotlands. Einnig hafa þau siglt í
Burgundy í Frakklandi. Ferðirnar voru pantaðar á netinu.
Fjölskyldan var svo vinsamleg að vilja deila með lesendum þeim vefsíðum sem notaðar voru og eftirfarandi upplýsingar eru teknar beint upp úr bréfi fjölskyldunnar:
Continue reading "Siglingar á ám og vötnum í Skotlandi og Frakklandi" »
Ferðalangur fékk skemmtilega ábendingu um litla heimagistingu skammt frá bænum Sens sur Seille í suð-austurhluta Bourgogne-héraðs sem bresk hjón reka, þau Carolyn og John Scallan sem hér sjást á myndinni í garði sínum.
Á heimasíðu þeirra, http://www.bandb-burgundy.com/, eru upplýsingar m.a. á íslensku. Boðið er upp á "gistingu í fjórum rúmgóðum tveggja manna herbergjum. Morgunverður fylgir gistingunni. Herbergin eru öll með góðri baðaðstöðu, sturtu og klósetti. Allt er mjög heimilslegt. Gestir hafa aðgang að stofum húsins og notalegum garði. Ef menn vilja bjóða Scallan hjónin upp á ríkulegan fjórréttaðan kvöldverð. Þá njóta menn rétta héraðsins, osta og vína. " (Orðrétt af heimasíðu).
Continue reading "Heimagisting í Bourgogne-héraði" »