Eyjan Madeira er stærsta eyjan í eyjaklasa sem kenndur er við Madeira og tilheyrir Portúgal. Hún er ekki nema 55 km löng og breiðust 22 km. Miðhluti eyjarinnar rís hátt, þar sem hæsti tindur er Ruivo de Santana, 1861 m.
Inn til landsins er eyjan að mestu óbyggð og ræktað land er ekki að sjá þegar komið er yfir 900 m hæð.
Madeira er kjörin til gönguferða af ýmsum þyngdargráðum og eftir hressandi gönguferð er hægt að láta fara vel um sig á heilsuhóteli ef fólk er í þeim gírnum.
Continue reading "Eyjan Madeira" »

Times Online hefur undanfarið birt mánaðarlegar greinar um tilteknar gönguleiðir í London. Nákvæmar leiðarlýsingar fylgja og hægt að smella á kort sem sýnir vel hvar gengið er. Hér koma þrjár þeirra:
An Olympic walk - Heimsókn í austurhluta London áður en hróflað verður við þessum borgarhluta fyrir Ólympíuleikana 2012. Lengd leiðarinnar er um 12 km (7.5 mílur) og tekur u.þ.b. þrjár klst.
Continue reading "Tvær gönguferðir í London og nágrenni" »
Ítölsku Dólómítarnir gefa göngugörpum kost á ægifögrum göngu- og klifurleiðum eftir slóðum sem gjarnan eru nefndar "le vie ferrate" eða "járnvegirnir" (ferro=járn), en ýmis hjálpargögn og járntól auðvelda göngumönnum klifrið á slíkum slóðum.
Í greininni Iron and mighty af vefsíðu The Guardian gefur Alf Alderson greinargóða mynd af möguleikum sem bjóðast á svæðinu Alta Badia í Dólómítunum. Ef ekki væri þessum "vie ferrate" fyrir að fara, gætu ekki nema þjálfuðustu göngu- og klifurgarpar nýtt sér þessar dramatísku leiðir en eins og staðan er í dag eru leiðirnar gjarnan merktar frá A - G, þar sem "A" leiðir eru auðveldastar og "G" þyngstar.
Continue reading ""Le vie ferrate" og Dólómítarnir" »

Sviss er ekki eingöngu paradís hjólreiðamanna heldur einnig göngufólks. Fjölbreyttar gönguleiðir gera það að verkum að allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi hvort sem það er í aflíðandi hæðum, þröngum eða víðum dölum eða í snarbröttum fjallshlíðum.
Stólalyftur og kláfar létta göngufólki lífið og flytja það til gönguleiða sem annars væri ekki svo auðvelt að finna. Hæfilega frumstæðar veitingastofur og fjallakofar prýða leiðirnar svo að sjaldnast eru nema 3-4 tímar í kaldan bjór og heita máltíð.
Hótel í Sviss
Continue reading "Gönguferðir í Sviss" »

Það eru ótal spennandi möguleikar til gönguferða í Bretlandi hvort sem um er að ræða gönguferðir með fylgdarmanni, gönguferðir þar sem farangur er fluttur á milli með bíl eða einfaldlega sjálfstæðar gönguferðir þar sem ferðalangurinn ræður sér fullkomlega sjálfur. Athugið reglur fyrir England, Wales og Skotland um "right of way" fyrir göngugarpa.
Continue reading "Gönguferðir um Bretland" »