Við horfum mörg löngunaraugum til sólarlanda eða stuttra borgarferða til að slaka aðeins á í öðru umhverfi. Þó er ekki víst að allir sem vilja geti leyft sér það um þessar mundir. Sumir geta það þó með því að sýna hagsýni og velja sér ódýrari ferðir og ódýrari gistingu.
Það er nefnilega hægt að njóta lífsins þó að rúmfötin á hótelinu séu ekki úr silki eða satíni og veggirnir séu ekki fóðraðir með listaverkum eftir Miro eða Picasso. Með öðrum orðum: Kannski getum við skroppið til sólarlanda án þess að fjárhagurinn fari á hvolf.
Ferðalangur vill benda þeim sem eru í sparnaðarhugleiðingum á að bera saman við íslenskar ferðaskrifstofur það sem nú býðst hjá EasyJet Holidays.
Flestir þekkja lágfargjaldaflugfélagið EasyJet og nú býður það í samstarfi við fleiri ódýrari sólarlandaferðir og borgarferðir þar sem lagt er upp frá fjölmörgum flugvöllum í Bretlandi. Má þar nefna m.a. London Gatwick, Stansted, Manchester, Glasgow og Edinborg. Það getur t.a.m. verið snjallt að sameina sólarlandaferðina og ferð til London eða Glasgow/Edinborgarmeð EasyJet Holidays og slá þannig tvær flugur í einu höggi.
Continue reading "EasyJet Holidays: Ódýrari sólarferðir - ódýrari borgarferðir " »
Eyjan Madeira er stærsta eyjan í eyjaklasa sem kenndur er við Madeira og tilheyrir Portúgal. Hún er ekki nema 55 km löng og breiðust 22 km. Miðhluti eyjarinnar rís hátt, þar sem hæsti tindur er Ruivo de Santana, 1861 m.
Inn til landsins er eyjan að mestu óbyggð og ræktað land er ekki að sjá þegar komið er yfir 900 m hæð.
Madeira er kjörin til gönguferða af ýmsum þyngdargráðum og eftir hressandi gönguferð er hægt að láta fara vel um sig á heilsuhóteli ef fólk er í þeim gírnum.
Continue reading "Eyjan Madeira" »
Morgunmatur
A Brasileira heitir staður í Lissabon sem rithöfundar og listamenn sóttu gjarnan fyrir um 100 árum síðan. A Brasileira er einn besti staðurinn til að verða vitni að því þegar borgin vaknar til lífsins á morgnana. Staðurinn liggur milli hins líflega Bairro Alto og Chiado verslunarhverfisins. Fáið ykkur "croissant" með skinku, heitt kakó eða bica (portúgalskt espresso) og setjist niður fyrir utan.
A Brasileira, Rua Garrett 120.
Opið daglega frá kl. 8 - 14:00.
Continue reading "Hvar er best að borða í Lissabon?" »
Á þessari litlu eyju, Porto Santo, sem liggur um 400 mílur frá strönd Afríku, er svo sannarlega hægt að finna kyrrð og ró fyrir þá sem það kjósa, nema seinnipart júnímánaðar þegar Sao Joao (St. John) hátíðin er haldin. Íbúar eru um 5000 talsins og eyjan ekki mikið stærri en 7x3 mílur.
Gestir koma með flugvél eða ferju frá Madeira.
Continue reading "Porto Santo - Portúgal" »
Ferðalangi barst skemmtilegur póstur með með upplýsingum varðandi íbúðahótel í Albufeira, Portúgal, sem heitir Vila Petra. Það var ánægður, íslenskur ferðalangur sem dvaldi þar fyrir nokkrum árum, ásamt fjölskyldu sinni.
Bóka gistingu á Vila Petra.
Continue reading "Vila Petra - Albufeira" »