Fyrir þá sem hyggja á skoðunarferð um Louvre safnið í París - hvort heldur í raunveruleikanum eða einfaldlega bara í sófanum heima er upplagt að kynna sér Louvre á netinu.
Á vefnum er ógrynni upplýsinga. Hægt er að lesa um sögu Louvre safnsins þar sem stiklað er á stóru um þessa 800 ára gömlu byggingu sem hýst hefur safnið undanfarnar tvær aldir. Einnig er hægt að fara n.k. “sýndarferð” um safnið (virtual tour). Ferðinni er heitið í gegnum hin ýmsu söfn Louvre, þar sem meðal annars er hægt að sjá egypska fornmuni og einnig muni frá tímum Forn-Grikkja, Rómverja og Etrúska.
Sérlega skemmtilegt er að skoða valin verk (Selected Works) frá mismunandi tímabilum með skýringum - t.d. Monu Lisu, öðru nafni “La Gioconda”, eftir Leonardo da Vinci og verk eftir Raffaello.
Á vefnum eru að sjálfsögðu praktískar upplýsingar um sérsýningar sem í gangi eru, opnunartíma, miðaverð og fleira. Þetta er vefur sem er í senn bæði skemmtilegur og fræðandi.
Ofurlítið heilræði:
Ef safnið er heimsótt í París, mæli ég með því að taka einungis fyrir hluta þess í einu - þetta er svo viðamikið safn að það er ekki nokkur leið að skoða það af viti á 2-3 tímum.