Það er mikið annríki á flugvellinum í München en hann er vel skipulagður og auðvelt að komast inn í borg.
Flugvöllurinn skiptist í tvo hluta (tvo "terminala") og er stutt að fara á milli þeirra. Á milli terminal 1 og 2 er miðlægt svæði þar sem finna má margvíslega þjónustu og aðstöðu. Þar er m.a. upplýsingaþjónusta fyrir komufarþega (opin 24 tíma á sólarhring).
Senda á Facebook
Continue reading "Að komast frá flugvellinum í München inn í borg" »
Eftirfarandi hótel/íbúðir eru meðal þeirra sem Íslendingar hafa gist á í Frankfurt am Main.
Apartments Duval
Sex góðar íbúðir í virðulegri byggingu á bökkum Main (sjá mynd hér til vinstri). Aðaljárnbrautarstöðin í göngufæri og stutt í neðanjarðarlest. Stutt í góða veitingastaði hinum megin við ána. Fín aðstaða. Internet í sumum íbúðum. (Ferðalangur hefur sjálfur dvalið þarna)
Concorde****
Staðsett í hjarta Frankfurt gegnt aðaljárnbrautarstöðinni. Allt það helsta í göngufæri, t.d. 800 m frá sýningarsvæðinu (bókamessunni) og einungis 15 mín. lestarferð á flugvöllinn.
Hotel Miramar Golden Mile****
Lítið hótel í hjarta Frankfurt, stutt í Römer Platz þar sem jólamarkaðurinn er haldinn á aðventunni. 100 m í hús Goethe og 80 m í bankahverfið. Internet.
Continue reading "Hótel í Frankfurt am Main" »
Nokkur hótel sem lesendur Ferðalangs hafa gist á í Berlín:
ArtHotel Connection (Gay Hotel/Hetero Friendly)
Vinsælt „gay hverfi“, örstutt frá Kurfürstendamm. Internet. Club Connection næturklúbburinn er í sömu byggingu, einnig kvikmyndahús. Ókeypis kaffi, te og sætabrauð er ávallt á boðstólum allan daginn í morgunverðarsalnum. Internet. Hótelið fær góða einkunn (sjá mynd til vinstri).
Adina Apartment Hotel Berlin Checkpoint Charlie****
Íbúðahótelið er í gamla Mitte hverfi mið-Berlínar. Aðeins 5 mín. gangur að Friedrichstrasse, Checkpoint Charlie og Gendarmenmarkt torgi. Heilsurækt, sundlaug. Internet. Íbúðirnar fá glæsilega einkunn.
Continue reading "Hótel í Berlín" »
Mynd frá paspog á Flickr
Ódýr hótel í München næstu 6 vikur. Upplýsingarnar uppfærast dag frá degi.
Continue reading "München: Ódýr hótel næstu 6 vikur" »
Mynd frá zacke82á Flickr
Ódýr hótel í Frankfurt am Main næstu 6 vikur. Upplýsingarnar uppfærast dag frá degi.
Continue reading "Frankfurt am Main: Ódýr hótel næstu 6 vikur - tilboð" »

Einstök tilboð - Ódýr hótel í Berlín næstu 6 vikur. Upplýsingarnar uppfærast dag frá degi.
Continue reading "Berlín: Ódýr hótel næstu 6 vikur - tilboð!" »
Ferðalangur brá sér í stutta heimsókn til Þýskalands á dögunum og lenti fyrir einskæra tilviljun í merkilegu hótelherbergi í borginni Köln. Þarna var um að ræða einstaklega vel staðsett hótel í hjarta borgarinnar, við Altmarkt sem heitir CityClass Hotel Europa am Dom.
Ferðalangur kom seint að og fékk trúlega síðasta 2ja manna herbergið sem laust var uppi á hanabjálka. Fyrst þurfti að taka lyftu upp á 4. hæð, ganga síðan upp á 5. hæð. Þar blöstu við hefðbundnar hótelhurðir merktar 501, 502 o.s.frv. nema hvað á einum stað blöstu við kolsvartar dyr sem litu út eins og þeim hefði verið troðið með valdi á milli 2ja annarra - alveg út úr kortinu.
Continue reading "Ódýr gisting miðsvæðis í Köln" »
Fyrir þá sem hafa gaman að gramsa í búðum sem selja notuð föt, koma hér upplýsingar um nokkra slíka staði í Berlín.
Garage (Ahornstrasse 2, Schoeneberg) er ein stærsta "second hand" verslunin í Berlín og selur föt á kílóverði.
Einnig er hægt að fá glitrandi ballkjóla frá þriðja áratug 20. aldar í Sterling Gold (Oranienburger Strasse 32, Heckmann-Hoefe).
Continue reading ""Bargain" í Berlín" »

Trúlega eru þeir margir sem ætla að fljúga til Þýskalands með fjölskylduna í sumar og taka bílaleigubíl. Hér koma nokkrar tillögur að viðkomustöðum sem ættu að geta gert ferðina skemmtilega fyrir yngri kynslóðina.
Würzburg
Ef flogið er til Frankfurt am Main er upplagt að aka til Würzburg sem jafnframt er n.k. upphafspunktur rómantísku leiðarinnar svokölluðu. Í Würzburg er gaman að skoða Residenz, risastóra 18. aldar höll þar sem biskupaprinsar höfðu aðsetur.
Einn stærsti dýragarður í Evrópu, Wildpark, liggur skammt Würzburg í Bad Mergentheim (tæplega klst. akstur). Mörg dýranna búa í náttúrulegu umhverfi, ekki í búri.
Continue reading "Með börnin og unglingana til Þýskalands" »
Mynd frá Grüni á Flickr
Leipziger Gose heitir sérkennilegur bjór sem kryddaður er með kóreander og salti og einkennandi fyrir Leipzig, þýsku borg sem fyrrum lá handan járntjaldsins. Enginn annar bjór þykir líkjast honum nema ef vera skyldi Berliner Weisse að sögn bjóráhugamanna. En Leipzig er þekkt fyrir annað og meira en bjór - þar fæddist tónskáldið Richard Wagner og þar bjuggu einnig þeir Robert Schumann og J. S. Bach.
Ef farið er í stutta heimsókn til Leipzig gæti verið góð hugmynd fyrir listunnendur að gista á Galerie Hotel Leipziger Hof. Þar er að finna meira en 200 listmuni, málverk og höggmyndir, bæði frá Leipzig og héraðinu í kring. Verðið sanngjarnt og vinalegur veitingastaður og bjórgarður líka. Það tekur einungis 15 mínútur að rölta í miðbæinn og sporvagnar stansa rétt við hótelið.
Continue reading "Leipzig - stutt heimsókn" »