Desembermánuður er e.t.v. ekki mánuðurinn sem fólk nýtir almennt til að fara á skíði til útlanda. Þó er hugsanlegt að einn og einn vilji nýta sér rólegheit og næði, viðarilm og arineld, sem finna má í Obergurgl í Tíról á þessum árstíma eins og lesa má um í greininni Where to find snow before Christmas eftir Nick Rufford af vefsíðu Times Online.
Gisting í Hotel Alpenland, Obergurgl
Continue reading "Á skíði fyrir jól?" »
Þeir sem ekki hafa enn kynnst skíðaíþróttinni að ráði, en dreymir um að komast í skíðaferðir til útlanda, ættu að líta á vefsíðuna Ski/snowboard advice af vefsíðu This is Travel.
Á síðunni fást ágæt svör við mörgum spurningum, s.s. hvaða orð eru notuð í skíðaíþróttinni (ski jargon), er hættulegt að fara á skíði, að hverju þarf að huga áður en lagt er í hann og hvaða skíðasvæði erlendis eru góð fyrir byrjendur. Þar eru m.a. nefndir eftirfarandi staðir:
Continue reading "Góð ráð og skíðasvæði fyrir byrjendur" »
Í Frakklandi eru mörg afbragðsskíðasvæði og verða nefnd hér nokkur svæði sem henta þeim sem náð hafa góðu valdi á skíðaíþróttinni. Samantektin er byggð a á grein Peters Hardy, Ski resort selection af vefsíðu travel.telegraph.
Les Arcs
www.lesarcs.com
Les Arcs liggur fyrir ofan bæina Moûtiers, Aime og Bourg-St-Maurice. Svæðið tengist La Plagne með kláfi og þar með verður til heljarstórt svæði Paradiski (sem raunar samanstendur af einu svæði í viðbót: Peisey-Vallandry).
Continue reading "Skíðasvæði í Frakklandi" »
Skíðaáhugafólk fer trúlega senn að huga að framboði skíðaferða fyrir veturinn.
Nýlega gerð var könnun á kostnaði við skíðaferðir á vegum Chris Gill og Dave Watts, sem eru ritstjórar bókarinnar Where to Ski and Snowboard 2006. Könnun þeirra leiddi í ljós að það er mun ódýrara að fara í skíðaferð nú en fyrir 10 árum síðan. Mestu munar á verði skíðaferða í Sviss, en þar er 20% ódýrara að fara á skíði nú en 1995.
Continue reading "Ódýrara að fara á skíði nú en fyrir 10 árum" »
Hvert eru Íslendingar að fara á skíði?
Jú, tveir staðir koma meðal annars upp í hugann og báðir í ítölsku Dólómítunum. Annars vegar Madonna di Campiglio sem stendur í dalnum Val Rendena í vesturhluta Trentino héraðsins, rétt við rætur Brenta-Dólómítanna. Þetta ku vera einn af bestu stöðum til skíðaiðkana í Ölpunum og við flestra hæfi, hvort sem um er að ræða byrjendur eða lengra komna. Þarna er ekki síður góð aðstaða fyrir þá sem iðka snjóbrettaíþróttina.
Continue reading "Á skíðum skemmti ég mér..." »