Ódýr hótel í Zürich næstu 6 vikur. Upplýsingarnar uppfærast dag frá degi.
Continue reading "Zürich: Ódýr hótel næstu 6 vikur" »
Luzern er höfuðborg samnefndrar kantónu í miðju Sviss (íbúar um 325.000) og stendur við Vierwaldstätter See (Lake Lucerne). Um borgina rennur áin Reuss og brýrnar yfir ána eru mikil prýði ekki síst yfirbyggða Kapellubrúin með gamla steinturninum við annan endann.
Borgin og umhverfi hennar er þekkt fyrir fegurð - vel varðveittan og gamlan miðbæ, þröngar hellulagðar götur og fallegar kirkjur. En þar með er ekki allt upp talið, því í Luzern er einnig heilmikið menningarlíf.
Continue reading "Luzern - veisla fyrir augu og eyru" »
Í hjarta svissnesku alpanna og aðeins í um 2ja stunda fjarlægð frá Zürich, liggur ein elsta borg Sviss, Chur (35.000 íb.) sem jafnframt er höfuðstaður kantónunnar Graubünden. Lítil og sannarlega heillandi borg með fallegum gömlum bæjarhluta þar sem steinlagðar götur ýta undir miðaldalegt yfirbragð og gaman er að rölta um án þess að ætla svo sem eitthvað sérstakt...
Continue reading "Chur - í hjarta alpanna" »
Ticino er sú kantóna í Sviss þar sem töluð er ítalska enda tilheyrði héraðið Como og Mílanó fram undir 15. /16. öld. Þetta er undurfallegt hérað sem svo sannarlega verðskuldar heimsókn og ekki síst sá hluti héraðsins sem liggur að vatninu Lago Maggiore. Það er ekki fjarri lagi að kalla Ticino n.k. brú milli Norður-Evrópu og Miðjarðarhafslandanna eins og fram kemur í greininni Canton aahhh frá Guardian Unlimited.
Hótel í Ticino og fjölbreyttir gistimöguleikar
Continue reading "Borgin Ascona í Ticino héraði, Sviss" »

Sviss er ekki eingöngu paradís hjólreiðamanna heldur einnig göngufólks. Fjölbreyttar gönguleiðir gera það að verkum að allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi hvort sem það er í aflíðandi hæðum, þröngum eða víðum dölum eða í snarbröttum fjallshlíðum.
Stólalyftur og kláfar létta göngufólki lífið og flytja það til gönguleiða sem annars væri ekki svo auðvelt að finna. Hæfilega frumstæðar veitingastofur og fjallakofar prýða leiðirnar svo að sjaldnast eru nema 3-4 tímar í kaldan bjór og heita máltíð.
Hótel í Sviss
Continue reading "Gönguferðir í Sviss" »
Það leikur enginn vafi á að Sviss er paradís fjallahjólreiðamanna. Þar hjálpast allt að, ægifagurt landslag, fjölbreyttar leiðir fyrir hjólreiðafólk, auðveldur flutningur á hjólum með lestum og afar góðar upplýsingar á netinu.
Continue reading "Að hjóla um Sviss" »
Það er svolítið gaman að heimsækja staði sem ekki er alltaf verið að hampa í auglýsingum.
Borgin Zug (ca. 22.000 íb.), fyrir sunnan Zürich, er höfuðborg kantónunnar Zug og stendur við norðausturhluta Zugersee.
Skattaparadísin Zug
Í Zug hafa höfuðstöðvar sínar mörg stórfyrirtæki sökum þess hve umhverfið er þeim "skattvænt" og þó að það sé dýrt að búa á staðnum, dýrt að lifa, þá borga íbúarnir sömuleiðis lága skatta. Þetta er raunar ríkasta kantónan í Sviss og tekjur á hvern íbúa eru litlum 70% hærri en landsmeðaltalið...
Continue reading "Zug, Zugersee og nágrenni - Sviss" »