Haustið er frábær tími til að sækja Ítalíu heim, einkum og sér í lagi vegna litríkra þorpshátíða og uppskeruhátíða (Vendemmia) sem haldnar eru á þessum tíma.
Að þessu sinni (2007) hefst uppskeran óvenju snemma, hefur ekki verið fyrr á ferðinni s.l. 30 ár vegna hitanna í sumar.
Þó að Toscana sýsla (Chianti héraðið) sé líklega þekktasta vínhérað Ítalíu út á við, þá er það Veneto sýsla sem framleiðir mesta vínmagnið á Ítalíu og þar á eftir fylgja Puglia, Sikiley og Emilia Romagna.
Vínhátíðirnar eru margar og má þar nefna Vino al Vino í þorpinu Panzano í Chianti héraði (milli Flórens og Siena) sem haldin er árlega þriðju helgina í september.
Í Piumonte sýslu í Asti (kannist þið ekki við Asti Spumante?) er hin árlega Douja d'Or hátíð og í Impruneta í Toscana er Festa dell'uva.
Við Gardavatnið hýsir þorpið Bardolino hið þekkta Bardolino Grape Festival í lok september.
Af nógu er að taka og á vefsíðu Frommers.com má lesa meira um þorps- og vínhátíðir í greininni How to Be a Part of Italy's Autumnal Wine Harvest