Tvær íbúðir fást á leigu fyrir ferðamenn í Róm á besta stað í borginni, á sjálfri Via del Corso.
Annars vegar er um að ræða 2ja herbergja íbúð, ca. 55 fm á 2. hæð í glæsilegri byggingu í klassískum stíl. Verð 140 evrur nóttin, vikan á 900 evrur.
Continue reading "Íbúðir í Róm" »
Í greininni Naples: A Passion for Pizza frá Fodors.com er hægt að kynna sér hvernig hin einna sanna pizza frá Napólí á að vera og mælt með góðum veitingastöðum í Napólí þar sem hægt er að gæða sér á "eðalpizzum".
Nýlega tóku samtök pizzugerðarmanna í Napólí sig saman og settu upp n.k. staðal fyrir pizzuna, þ.e. nú er hægt að tala um pizza doc (denominazione d'origine controllata) og pizza stg (specialità tradizionale garantita).
Continue reading "Napólí: Hvernig er hin eina, sanna pizza?" »
Áhugaverðir gistimöguleikar í Flórens, Róm, Belluno (Dólómítarnir) og Ancaiano (13 km frá Siena):
Flórens - einungis fyrir konur
Hér er indælis reyklaust B&B í boði fyrir konur, í miðaldabyggingu í miðbæ Flórens. Fjögur herbergi sem öll snúa að rólegum húsagarði, þar af hafa þrjú þeirra útsýni til dómkirkjunnar margfrægu, il Duomo. Aðeins í fárra mínútna fjarlægð frá Uffizi safninu, Ponte Vecchio o.fl.
Continue reading "Nokkur góð B&B á Ítalíu" »
Borgin Bologna í héraðinu Emilia-Romagna á Ítalíu var valin menningarborg Evrópu árið 2000. Af því tilefni voru 10 milljónir dollara settar í að breya niðurníddu hverfi í norðvesturhluta borgarinnar í listahverfi (ca. 15 mín. ganga frá miðbænum).
Fram að því höfðu nokkrar stórar byggingar staðið ónotaðar í hverfinu, s.s. sláturhús, saltgeymsla og tóbaksgeymsla. Nú er þar hins vegar komin "listaverksmiðja" eða Manifattura delle Arti. Sláturhúsið breyttist í Cineteca, miðstöð kvikmyndarannsókna og viðgerða. Cineteca hýsir m.a. safn tileinkað Charlie Chaplin þar sem Chaplin aðdáendur geta fengið lánaðar DVD myndir og horft á þær frítt á sérstökum skermum í safninu.
Continue reading "Nýtt listahverfi fæðist í Bologna" »
Þú ert stödd/staddur á Ítalíu og ætlar aldeilis að taka til matar þíns. Hefur enda heyrt að hvergi sé betra að borða en á Ítalíu. En hver er munurinn á ristorante, trattoria, osteria, tavola calda, paninoteca, enoteca o.s.frv.?
Allt eru þetta staðir þar sem hægt er kaupa ýmislegt matarkyns en þó er munur á því hvers konar matur er seldur og hvernig hann er fram borinn.
Ristorante
Ítalskir ristoranti (fleirtala) eru eins mismunandi og landslagið á Ítalíu. Sumir tilheyra þekktum kokkum sem sérhæfa sig í nýstárlegum réttum og óvenjulegum. Aðrir eru einfaldir og bjóða hefðbundna rétti héraðsins. Á ristorante er prentaður matseðill og vínlisti.
Continue reading "Ristorante, trattoria, osteria.... Hver er munurinn?" »
Þegar Ferðalangur lagði leið sína til Sardiníu, urðu fyrir valinu tveir gististaðir, annars vegar í borginni Alghero á vesturströnd Sardiníu og hins vegar á austurströndinni uppi í sveit, rétt hjá borginni Olbia.
Báðir gististaðirnir flokkast undir B&B, þ.e. gisting og morgunverður, þar sem ekki eru nema fá herbergi í útleigu. Ástæðurnar fyrir valinu voru einfaldlega þær að slíka gistingu má fá á skikkanlegu verði og einnig gefst oft kostur á að kynnast gestgjöfunum svolítið í leiðinni og það hentar Ferðalangi ágætlega.
Continue reading "Gisting á Sardiníu. Casa delle Fate og Caval Mari" »
Það hefur lengi verið draumur Ferðalangs að komast til Sardiníu. Í byrjun ágúst varð sá draumur loks að veruleika og haldið var með eitt stk. ungling á vit nýrra upplifana sem svo sannarlega eru efni í fleiri en einn pistil hér á vefnum.
Ferðalangur flaug til Sardiníu frá London Stansted með Ryanair, til lítillar borgar, Alghero (ca. 60 þús. íb.) vestan megin á Sardiníu. Verðið var hlægilegt, enda miðarnir keyptir þegar Ryanair var með eina af sínum fjölmörgu útsölum s.l. vor.
Myndir frá Sardiníu.
Continue reading "Sardinía: Ferðalangur finnur sína "paradís". Myndir." »
Ferðalangar sem heimsótt hafa Feneyjar oftar en einu sinni og ef til vill á ólíkum árstíma, hafa án efa veitt því eftirtekt að borgin er ekki alltaf eins. Stundum er hún sveipuð dularmóðu og sjarma en svo getur hún líka boðið upp á suddaveður eða óbærilegan hita, ótrúlegan fjölda annarra ferðamanna og svimandi hátt verð eða fyllt vit manna af heldur óskemmtilegum fnyk…
Þetta eru einfaldlega Feneyjar. Hér eru hins vegar nokkur góð ráð til að ráða við aðstæður í þessari merkilegu borg:
Continue reading "Feneyjar – góð ráð" »
Solunto er staður sem ferðamenn til Palermo/Sikileyjar ættu ekki að láta fram hjá sér fara. Staðurinn liggur um 17 km austan við Palermo í hlíðum fjallsins Catalfamo, ekki langt frá Bagheria.
Þetta eru rústir bæjar sem byggður var þar sem áður stóð Kfra, þorp Fönikíumanna, sem stofnað var um árið 700 f. Kr. Grikkir tóku við yfirráðum bæjarins árið 396 f. Kr. og útfærðu hann frekar. Kfra féll síðan í hendur Rómverja árið 254 f. Kr. og rústirnar bera að mestu merki þeirra.
Sjá myndir.
Continue reading "Myndir frá Solunto, Sikiley" »
Það er ekkert grín að heimsækja Pompei og þær stórmerkilegu gömlu borgarrústir sem þar er að finna.
Strax um hálf níu leytið að morgni er aðalhliðið Porta Marina fullt af fólki. Og fyrir innan má sjá um 163 ekrur af rústum sem hafa nánast ótrúlega sögulega þýðingu.
Daglegt líf
Fjöldi merkra bygginga í Pompei er ómetanlegur, sem og mósaikið og veggmyndir sem varðveist hafa. Arkitektúrinn þar og listir voru partur af blómlegum bæ þar sem um 20.000 manns bjuggu, stunduðu verslun og viðskipti, átu, drukku, tilbáðu sína guði og sóttu vændishús.
Continue reading "Pompei - aftur til fortíðar" »
Snemma á 19. öld hófu ferðamenn að flýja óreiðuna í Napolí til Sorrento og þeir hafa eiginlega aldrei farið síðan. Íbúarnir telja að töfrar lagsins Come Back to Sorrento hafi eitthvað með málið að gera en trúlega er það ekki síður þægilegt andrúmsloft bæjarins sem er ágætis tilbreyting frá klettum og eldfjöllum í nágrenninu.
Sorrento stendur á sjávarhömrum á ákaflega fallegum stað sem tilheyrir Campania héraðinu. Bærinn á sér fornar rómverskar rætur sem sést best á skipulagi hans. Sem betur fer stóð bærinn nógu langt frá eldfjallinu Vesúvíusi til að komast hjá þeim ósköpum sem grófu Pompeii og Herculaneum undir ösku.
Continue reading "Komdu aftur til Sorrento" »
Caprí er nokkurs konar "eftirréttur" Amalfistrandarinnar. Eyjan var á meðal fyrstu þekktu ferðamannastaða heims og festi sig endanlega í sessi þegar hinn litríki hellir Blue Grotto fannst árið 1826.
Segja má að Capri hafi oft skipt um "persónuleika" í gegnum tíðina. Í dag er andrúmsloftið ennþá svolítið "glamúrlegt" en ekki eins opinskátt og áður. Umhverfi Caprí er þó eins töfrandi og áður - Faraglioni klettarnir sem rísa brattir upp úr sjónum, hin miðaldalegi bær Certosa, glitrandi sjávarhellar og ein af villum Tíberíusar keisara, Villa Jovis, sem er ein af tólf sem hann lét byggja þegar Caprí var hinn raunverulegi höfuðstaður rómverska keisaradæmisins.
Continue reading "Eyjan Capri" »
Héraðið Abruzzo á Ítalíu getur verið ákjósanlegur kostur fyrir fjölskyldudvöl t.d. í septembermánuði þegar hitinn er farin að lækka og ferðamönnum fækkar. Það er ódýrt að fljúga t.d. til Pescara með Ryanair frá London Stansted og börn eru afar velkomnir gestir í Abruzzo eins og raunar annars staðar á Ítalíu. Abruzzo er þar að auki nokkuð laust við gerviveröldina sem oft þjakar vinsæla staði sem reyna að gera ferðamönnum til geðs.
Continue reading "Abruzzo: Bændagisting og börn" »
Fjöllin virðast e.t.v ógnvekjandi fyrir ofan þorpið Positano, en "íslituðu" húsin í einum lóðréttasta bæ á Ítalíu virðast beinlínis hlægja þar sem þau nánast detta hvert ofan á annað alveg niður að sjónum.
Flest húsin standa ofar en sóknarkirkjan í Positano og þannig horfa flestir íbúarnir niður á kirkjuna sína - og má segja að svalirnar þeirra séu eins og stúkur fyrir ofan leiksvið sem er engu líkt.
Continue reading "Positano við Amalfi ströndina" »
Bærinn Ravello við Amalfiströndina stendur ekki við ströndina sjálfa en bætir það upp með görðum og útsýni sem fær fólk til að grípa andann á lofti.
Margir hafa sótt þangað innblástur, m.a. höfundur bókarinnar Lady Chatterley's Lover, D.H. Lawrence. Tónskáldið Wagner varð svo hrifinn af Villa Rufolo í Ravello og garðinum í kring að hann notaði umhverfið þaðan í óperu sína Parcifal. Og kvikmyndin "A Good Woman" notar sömu villu sem fyrirmynd að golfklúbbi í myndinni. Síðast en ekki síst - engir bílar eru í Ravello!
Continue reading "Ravello og rómantískasti garður á Ítalíu " »
Það hefur ekki mikið breyst á Amalfi ströndinni í hundruðir ára. Ströndin sjálf er um 50 km löng og nær frá Sorrento til Salerno. Þarna má sjá palla fyrir sítrónutré grafna inn í fjallshlíðarnar og brattinn er hreinlega of mikill til að bæta miklu við. Húsin í þorpunum standa líka of þétt til þess að pláss sé fyrir "corporate culture" - sem betur fer.
Á Amalfi eru hótelin meðal þeirra fallegustu og rómantískustu á Ítalíu. Þau standa oft í fallegum þorpum eða í gömlum miðaldaklaustrum og hafa jafnvel verið í eigu sömu ættarinnar í marga ættliði. Eins og áður fyrr, þá er orðið ódýrt ekki til í Amalfi orðabókinni.
Continue reading "Töfrar Amalfi..." »
Háskólaborgin Padova stendur við Bacchiglione ána milli Verona og Feneyja og gegnir stóru hlutverki sem miðstöð verslunar, landbúnaðar og iðnaðar í héraðinu Veneto.
Hvers vegna Padova?
Leikritið fræga, Skassið tamið eftir Shakespeare var látið gerast í Padova. Í borginni má finna mjög vel varðveitt kalkmálverk eftir 14. aldar málarann fræga Giotto. Padova er ein af fallegustu smáborgum Ítalíu, með yfirbyggðar gangstéttir, stór torg og frægan háskóla.
Continue reading "Padova - falinn fjársjóður" »