Við horfum mörg löngunaraugum til sólarlanda eða stuttra borgarferða til að slaka aðeins á í öðru umhverfi. Þó er ekki víst að allir sem vilja geti leyft sér það um þessar mundir. Sumir geta það þó með því að sýna hagsýni og velja sér ódýrari ferðir og ódýrari gistingu.
Það er nefnilega hægt að njóta lífsins þó að rúmfötin á hótelinu séu ekki úr silki eða satíni og veggirnir séu ekki fóðraðir með listaverkum eftir Miro eða Picasso. Með öðrum orðum: Kannski getum við skroppið til sólarlanda án þess að fjárhagurinn fari á hvolf.
Ferðalangur vill benda þeim sem eru í sparnaðarhugleiðingum á að bera saman við íslenskar ferðaskrifstofur það sem nú býðst hjá EasyJet Holidays.
Flestir þekkja lágfargjaldaflugfélagið EasyJet og nú býður það í samstarfi við fleiri ódýrari sólarlandaferðir og borgarferðir þar sem lagt er upp frá fjölmörgum flugvöllum í Bretlandi. Má þar nefna m.a. London Gatwick, Stansted, Manchester, Glasgow og Edinborg. Það getur t.a.m. verið snjallt að sameina sólarlandaferðina og ferð til London eða Glasgow/Edinborgarmeð EasyJet Holidays og slá þannig tvær flugur í einu höggi.
Continue reading "EasyJet Holidays: Ódýrari sólarferðir - ódýrari borgarferðir " »
Prag er borgin í hjarta Evrópu; borgin sem er einstaklega vel staðsett fyrir bæði evrópska ferðamenn sem og gesti frá öðrum heimsálfum. Prag er eins og margir vita stærsta borg Tékklands og jafnfram ein af stærstu borgum Evrópu.
Borgin varð fyrir miklum skemmdum í heimstyrjöldinni síðari en hefur síðan þá tekið miklum breytingum og er nú ein af vinsælustu áfangastöðum ferðalanga í veröldinni. Meðal þess sem dregur að er næturlíf borgarinnar. Klúbbar af ýmsu tagi og dansstaðir eru víða og auðvelt að gera sér dagamun ef svo ber undir. Hér fyrir neðan eru nefndir nokkrir af bestu kokteilstofum í Prag og síðan krár og pubbar.
Kokteilstofur í Prag
- Buggsys - einn af vinsælli stöðum í Prag, sér í lagi vegna skemmtiatriða og fjölbreytilegs úrvals kokteila sem þar er að finna. Á vínseðlinum má finna yfir 200 samsetta drykki sem útbúnir eru eftir kúnstarinnar reglum af reyndustu og bestu barþjónum sem finna má í borginni.
Continue reading "Prag - kokteilstofur, barir, klúbbar og dans" »
Tilboð um ódýr hótel í Prag næstu 6 vikur. Upplýsingarnar uppfærast dag frá degi.
Continue reading "Prag: Ódýr hótel næstu 6 vikur" »
Ferðalangur hefur áður fjallað um Prag, en hér koma ómetanlegar viðbótarupplýsingar frá Íslendingi sem býr í Tékklandi, Björgvini Brynjólfssyni, sem var svo vinsamlegur að deila þeim með lesendum Ferðalangs.
Bjórhimnaríki
Pivovarsky Dum er í göngufjarlægð frá Vaclavske Namesti. Þetta er bjórhimnaríki og frægasta brugghús/bar í Prag. Þarna er m.a. hægt að fá kaffibjór, bananabjór og kirsuberjabjór (!).
Heimilisfang:
Lípová 15 Prag 2
Sömu aðilar eru nýlega búnir að opna útibú í Karlín-hverfi, þar sem svipað þema er uppi á teningnum.
Continue reading "Prag - það sem ekki allir vita" »
Aðventan í Tékklandi hefur mikið aðdráttarafl fyrir þá sem upplifa vilja eitthvað öðruvísi og sérstakt.
Í Tékklandi er hægt að finna ýmsar frumlegar jólagjafir s.s. leikföng úr tré fyrir börnin, sérhannaða skartgripi, fallegan kristal og jafnvel grasalíkjörinn Becherovka. Tékkneskt jólaskraut þykir einnig afar skemmtilegt, úr gleri, tré eða jafnvel stráum.
Gisting
Hótel í Prag og fleiri fjölbreyttir gistimöguleikar
Hótel og fjölbreytt gisting í Tékklandi
Continue reading "Tékkland - aðventa, jól og áramót" »
Margir telja tékkneskan bjór þann besta í heimi. Tékkneskur "bjórkúltúr" er hins vegar sér á báti og gott fyrir aðkomufólk að vita deili á siðum heimamanna.
Ferðalangar í leit að rétta bjórnum ættu að horfa fram hjá bjórkrám sem auglýstar eru sem "Irish Pub" og "casino" en horfa í staðinn eftir "hospoda eða pivnice" sem er tékkneska orðið fyrir krá. Það er líka traustvekjandi ef að krítartafla auglýsir verð á bjór fyrir 30 Kc (tékkneskar krónur) eða minna og eins ef staðurinn er þéttsetinn af Tékkum sjálfum...
Continue reading "Bjór í Prag - kanntu til verka?" »
Almennur fróðleikur
Yfirlitskort af Tékklandi eða kort af tilteknum svæðum í Tékklandi (veljið Czech Republic)
Gisting
Gisting í Tékklandi
Til leigu sumarhús og íbúðir frá E-domizil
Til leigu sumarhús og íbúðir frá MyVillaRenters.com
Continue reading "Tékkland - Yfirlit" »
Það er fleira að skoða í Tékklandi en höfuðborgin Prag ein og sér. Víða um Tékkland liggja afskaplega friðsælir og fallegir bæir. Telc, Kutna Hora og Mikulov eru þrír slíkir, þar af eru tveir þeirra á heimsminjaskrá UNESCO.
Telc, sem liggur um 160 km suðaustur af Prag, er á heimsminjaskrá vegna húsanna í gamla bænum sem upphaflega voru úr tré, en eftir mikinn eldsvoða á 14. öld voru þau endurbyggð úr steini.
Continue reading "Telc, Kutna Hora og Mikulov" »
Það er auðvelt að komast til Brno, næst stærstu borgar Tékklands. Þangað flýgur lágfargjaldaflugfélagið Ryanair daglega frá Stansted og miðarnir oft á hlægilegu verði.
Óhætt er að mæla með hótelinu Royal Ricc sem er í 16. aldar byggingu í barokkstíl og var fyrir nokkrum árum síðan breytt í eitt laglegasta hótel í Brno með antikhúsgögnum og málverkum á herbergjunum og skemmtilegum smíðajárnsskreytingum í lobbíinu. Góður veitingastaður er á hótelinu með alþjóðlegum matseðli.
Continue reading "Brno - afhverju ekki?" »

Prag er "stemming". Prag er menning. Prag er list. Prag er …. engu lík. Þangað er hægt að koma aftur og aftur og njóta hvers einasta andartaks. Borgin er þó ekki öll jafn falleg. Gangið aðeins út fyrir miðborgina og þá gefur að líta grámuskulegar íbúðablokkir sem minna á árin áður en "járntjaldið" féll.
Einhvern veginn hefur mér alltaf þótt Prag vera svo langt í burtu - en hið rétta er að það eru ekki nema 384 km milli München og Prag og 294 km milli Vínarborgar og Prag. Vegalengd sem lítill vandi er að fara á hluta úr degi.
Að koma til Prag
Ef komið er akandi til Prag frá t.d. Austurríki liggur leiðin í gegnum afskaplega fallegt, skógi vaxið landslag og akra. Vegirnir eru yfirleitt frekar mjóir og vart hægt að aka á meira en 80-90 km hraða.
Lágfargjaldaflugfélög eins og Ryanair og Easyjet fljúga gjarnan til Prag.
Gisting
Það er vægast sagt um margs konar gistingu að ræða, hótel af öllum stærðum, gerðum og gæðaflokkum í Prag. Einnig er oft hægt að leigja íbúðir á hagstæðu verði.
Helstu upplýsingar
Prague welcome
Óperan í Prag
Miðar á ýmsa viðburði í Prag
Continue reading "Prag - alveg einstök" »