Ódýr hótel næstu 6 vikur. Upplýsingarnar uppfærast dag frá degi.
Continue reading "Búdapest: Ódýr hótel næstu 6 vikur" »
Ferðalangur hefur lengi haft mikla trú á heitum böðum og heilsulindum. Því er upplagt að nefna þekktan stað í Ungverjalandi, Heviz (Hévíz), sem liggur skammt frá vestari enda Balatonvatns.
Það ku vera nóg af böðum í Búdapest frá ýmsum tímum, s.s. frá tímum Tyrkja, Habsborgara, kommúnista og kapítalista... en þegar Ungverjar fara í frí, taka þeir lest til Heviz þar sem er að finna stærstu, heitu uppsprettu Evrópu, eins og lítið stöðuvatn. Til Heviz sóttu Rómverjar fyrir 2000 árum og fyrir 200 árum var byggð upp heilsumiðstöð hjá vatninu.
Vatnið er afar steinefnaríkt og á botni þess er þriggja feta þykkt lag af brennisteinsleir sem á að létta lífið hjá þeim sem þjást af ýmis konar gigtarsjúkdómum, húðsjúkdómum o.fl.
Upplýsingar um Heviz
Continue reading "Heviz - nærir bæði sál og líkama" »
Almennur fróðleikur
Yfirlitskort um Ungverjaland eða kort af tilteknum svæðum í Ungverjalandi (velja Hungary)
Gisting
Gisting í Ungverjalandi
Til leigu sumarhús og íbúðir frá E-domizil
Continue reading "Ungverjaland - Yfirlit" »
Þorpið Tihany við Balatonvatn verðskuldar kafla út af fyrir sig. Þorpið stendur á litlu nesi sem var eitt sinn eyja en nær núna langt út í Balatonvatnið og skiptir því næstum í 2 parta. Það má með sanni kalla Tihany perlu Balatonsvæðisins.
Nesið, sem Tihany stendur á, var fyrsta friðlýsta svæðið í Ungverjalandi (1952). Þar gefur að líta merki um hveri - þar sem hverahrúður hefur safnast upp, nokkuð sem Íslendingar verða hissa á að sjá í útlöndum. Á nesinu er líka mikið af sérstöku plöntu- og dýralífi vegna hins sérstæða veðurfars sem ríkir við Balatonvatn og líka vegna þess að það rennur ekkert úr vatninu.
Continue reading "Tihany við Balatonvatn í Ungverjalandi" »
Balatonvatn í Ungverjalandi er stundum kallað "ungverska hafið" þar sem það er eina stöðuvatn/haf Ungverja. Það liggur í rúmlega 130 km fjarlægð frá Búdapest (eftir því hvaðan er mælt að sjálfsögðu).
Vatnið og umhverfi þess er mikill unaðsreitur og vinsæll sumarleyfisstaður fyrir bæði Ungverja og gesti sem koma lengra að, jafnvel Íslendinga. Einstök veðurblíða og umhverfi gerir þetta að sannkölluðum sælureit.
Gisting
Hótel Annabella heitir þriggja stjörnu hótel sem liggur um 50 m frá vatninu, stórt og glæsilegt. Þar er bæði hægt að nýta baðaðstöðu fyrir gesti niðri við vatnið eða sundlaugar hótelsins (bæði úti og inni). Morgunverðar- og kvöldverðarhlaðborð er mjög fínt og margvísleg aðstaða til dægrastyttingar á kvöldin, s.s. mismunandi tegundir veitingasala: Bjórgarður, píanóbar o.fl.
Continue reading "Balatonvatn - Balatonfüred" »
Orð eins og virðuleiki og glæsileiki koma fyrst í hugann þegar minnst er á Búdapest. Ekki þarf annað en að standa um stund á Hetjutorginu (Hosök Tere) til að skilja þessi orð og finnast maður mega sín lítils… Kannski ekkert skrítið að Búdapest er gjarnan nefnd "París" Austur-Evrópu.
Lágfargjaldafélög fljúgja gjarnan til Búdapest frá t.d. London.
Hótel í Búdapest
Continue reading "Búdapest" »