« Nokkur helstu lágfargjaldaflugfélög | Aftur á aðalsíðu | Að komast frá Stansted inn í London »
Ódýr gisting rétt hjá Stansted flugvelli
High Trees: http://www.stansted-bandb.co.uk
Fyrir nokkrum vikum lenti ég í smá ævintýri við komu til Stansted flugvallar frá Keflavík. Ég hafði eytt fleiri klukkutímum á Netinu í leit að ódýrri gistingu í nágrenni Stansted (ótrúleg þrjóska!) og ákvað loks að panta hjá Bonningtons Guest House vegna þess að þar var bæði gistingin ódýr og innifaldar ferðir til og frá flugvelli. - Þegar ég hringdi af flugvellinum, kannaðist enginn neitt við neitt og pöntunin mín fannst hvergi.
Mér var þó leiðbeint um það hvernig finna mætti annan stað og til að gera langa sögu stutta, endaði ég í yndislegu herbergi ennþá nær Stansted (5 mín.) og enn ódýrara en hitt. Gistingin var í High Trees (B&B) hjá afskaplega notalegri konu, Jean Jennings. Vefurinn hennar, High Trees: http://www.stansted-bandb.co.uk. Eins manns herbergi kostaði þar 29 pund, 2ja manna með baði 49 pund og ferð frá flugvellinum fram og til baka 9 pund. Allt var óskaplega snyrtilegt og morgunverðurinn indæll. Ég fékk góðfúslegt leyfi hjá Jean til að láta vita af henni hér.
desember 26, 2004 in * Bretland, Hótel - sumarhús | Prentvænt